Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Gjafir

Útskriftargjöf Björns Ólafssonar fiðluleikara

Gunilla Möller, Rauðalæk 3, 105 Reykjavík færir Tónlistarsafni að gjöf innbundna bók með strengjakvartettum Mozarts. Á saurblaði bókarinnar stendur skrifað: Til Björns Ólafssonar sem er fyrsti nemandi í fiðluleik sem lauk prófi við Tónlistarskólann í Reykjavík vorið 1934. Viðurkenning fyrir sérstaka ástundun og alúð við námið. Fyrir hönd Tónlistarfélagsins: E. R. Jónsson, Haukur Gröndal, Björn…

Lesa meira : Útskriftargjöf Björns Ólafssonar fiðluleikara

Bækur Markúsar Kristjánssonar

Jón B. Guðlaugsson, m.a. velunnari íslenskrar tónlistar um langa hríð, færði Tónlistarsafni Íslands að gjöf fallega mynd af Markúsi Kristjánssyni píanóleikara auk þriggja útgáfa af bókinni „Die Lehre von der musikalischen Komposition“ eftir A. B. Marx. Lesa má nánar um Markús Kristjánsson í Tónlistarsögu Reykjavíkur, eftir Baldur Andrésson og sjá má á www.musik.is.

Lesa meira : Bækur Markúsar Kristjánssonar

Gögn Einars Markan

Anne-Marie Markan færði Tónlistarsafni Íslands að gjöf gögn úr eigu Einars Einarssonar Markan, afabróður síns. Gögnin koma frá Jóni Kalman Stefánssyni en Einar var langafi hans. Um er að ræða bréf, myndir, tónleikaprógröm og tónsmíðar frá hendi Einar, og þeirra á meðal handrit að óperunni Geysir og Katla frá árinu 1942, auk sönglaga. Má minna…

Lesa meira : Gögn Einars Markan

Dr. Victor Urbancic

19. apríl kom Kristján Sigtryggsson í Tónlistarsafn Íslands og afhenti okkur að gjöf mynd af orgeli Dr. Viktors Urbancic þar sem á stendur mynd af honum sjálfum. Í bréfi Kristjáns sem fylgdi gjöfinni segir hann: „Skömmu eftir andlát Dr. Viktors Urbancich vann ég að grein um hann fyrir Organistablaðið. Þá heimsótti ég konu hand, Dr.…

Lesa meira : Dr. Victor Urbancic