Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Um Tónlistarsafnið

Tónlistarsafn Íslands opnaði 9. maí 2009 með sýningunni Dropar úr íslensku tónlistarlífi. Kópavogsbær rak safnið með stuðningi mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Sumarið 2017 var safninu lokað í Kópavogi og það flutt í Þjóðarbókhlöðu. Tónlistarsafnið er nú hluti af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni en stærri munir eru í Þjóðminjasafni Íslands.

Auk sýninga byggir safnið upp gagnagrunna og miðlar efni á netinu, í Ísmús (ismus.is) og á þessum vef, auk þess að veita upplýsingar um íslenska tónlistarsögu.

Fyrirspurnir

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík. Sími 525 5600, netfang tonlistarsafn (hjá) landsbokasafn.is.