Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Viðtöl við tónlistarmenn

Dægurtónlist

Viðtöl og önnur myndskeið sem Tónlistarsafn Íslands hefur gert og tengjast rokk- og dægurtónlist

  • Björn Thoroddsen – Gítarsóló frá 1992. Lagið „Í góðu lagi“ með hljómveitinni Gammar. Gítarinn er Performance, smíðaður í Los Angeles 1981.
  • Björn Thoroddson – Gítarsóló frá 1992. Lagið „Af Niðafjöllum“ með hljómveitinni Gammar. Gítarinn er Fender Stratocaster Anniversary.
  • Blóð – Hljómsveitin steig á svið 19. september 2009 í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í tilefn af sýningu Tónlistarsafns Íslands: „Heilbrigð æska – Pönkið og Kópavogurinn 1978-1983“.
  • Finnur Torfi Stefánsson (1/3) – Björn Thoroddsen ræðir við Finn Torfa 16. okt. 2009 um ferilinn og gítara (þar á meðal Gibbann góða). Viðtalið fór fram í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi.
  • Finnur Torfi Stefánsson (2/3).
  • Finnur Torfi Stefánsson (3/3).
  • Fræbblarnir – Hljómsveitin steig á svið 19. september 2009 í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í tilefn af sýningu Tónlistarsafns Íslands: „Heilbrigð æska – Pönkið og Kópavogurinn 1978-1983“.
  • Guðlaugur Kristinn Óttarsson – Björn Thoroddsen ræðir við Guðlaug 16. okt. 2009. Viðtalið fór fram á Gítarverkstæði Gunnar Arnar við Laugalæk í Reykavík.
  • Gunnar Ringsted (1/3) – Björn Thoroddsen ræðir við Gunnar um fyrst árin í bransanum. Viðtalið fór fram í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi.
  • Gunnar Ringsted (2/3).
  • Gunnar Ringsted (2/3).
  • HFF – Hljómsveitin steig á svið 19. september 2009 í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í tilefn af sýningu Tónlistarsafns Íslands: „Heilbrigð æska – Pönkið og Kópavogurinn 1978-1983“.
  • Hreinn Valdimarsson (1/3) – Björn Thoroddsen ræðir við Hrein 26. okt. 2009 um gítara, magnara og tíðarandann fyrrum. Sérstaklega tóku þeir fyrir Framus gítarinn frá 1965, sem Hreinn eignaðist haustið 1967. Viðtalið fór fram í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi.
  • Hreinn Valdimarsson (2/3).
  • Hreinn Valdimarsson (3/3).
  • Ólafur Gaukur Þórhallson (1/2) – Björn Thoroddsen ræðir við Ólaf 1. okt. 2009. Viðtalið fór fram í Gítarskóli Ólafs Gauks við Síðumúla í Reykjavík.
  • Ólafur Gaukur Þórallsson (2/2).
  • Ólafur Gaukur – Gítarsóló frá 1962. Lagið „Vegir liggja til allra Átta“ úr kvikmyndinni „79 af stöðinni“ (frumsýnd 12. okt. 1962). Gibson gítarinn sem Ólafur notar keypti hann nýjan á 6. áratugnum af bandarískum hermanni. Þá lék Ólafur með hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar (KK Sextettinn) spilaði mikið á Vellinum.
  • Rúnar Þór (1/2) – Björn Thoroddsen ræðir við Guðlaug 15. okt. 2009. Viðtalið fór fram á Gítarverkstæði Gunnar Arnar við Laugalæk í Reykavík.
  • Rúnar Þór (2/2).
  • Sigurgeir Sigmundsson (1/2) – Björn Thoroddsen ræðir við Sigurgeir 25. okt. 2009 um ferilinn og gítara (þar á meðal Fenderinn góða). Viðtalið fór fram í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi.
  • Sigurgeir Sigmundssonr (2/4).
  • Sigurgeir Sigmundsson (3/4).
  • Sigurgeir Sigmundsson (4/4).
  • Sigurgeir Sigmundsson – Gítarsóló frá 2006. Úr myndinni „Þetta er ekkert mál“, heimildarmynd um Jón Pál Sigmarsson kraftajötun sem Steingrímur Jón Þórðarson gerði – Sigurgeir vann tónlist við myndina. Gítarinn er Fender Stratocaster, aðal hljóðfæri Sigurgeirs og mikið „spilaður“.
  • Tryggvi Hübner – Björn Thoroddsen ræðir við Tryggva 1. okt. 2009 um fyrsta gítarinn: Gibson Les Paul Custom (1973). Viðtalið fór fram í Gítarskóla Íslands við Síðumúla.
  • Tryggvi Hübner – Gítarsóló frá 1995. Lagið „Fúnksjón“ af plötunni „Betri ferð“. Gítarinn er Les Paul Custom frá 1973.
  • Þorsteinn Mangússon (Steini í Eik) – Björn Thoroddsen ræðir við Steina 15. okt. 2009. Viðtalið fór fram á Gítarverkstæði Gunnar Arnar við Laugalæk í Reykavík.
  • Þorsteinn Magnússon – Gítarsóló frá 1977. Lagið „Fúnk“ af plötunni „Hríslan og straumurinn“.
  • Þórður Árnason (58 min.) – Björn Thoroddsen ræðir við Þórð 25. okt. 2009 um ferilinn og gítara. Viðtalið fór fram í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi.