Ljósmyndir af erlendum listamönnum sem komu fram á tónleikum Tónlistarfélagsins í Reykjavík, flestir fyrir styrktarfélaga þess, á árunum 1939–1974.

Adele Addisson
Bandaríska sópransöngkonan Adele Addisson hélt tónleika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói 16. og 17. maí 1966. Meðleikari á píanó var Brooks Smith. Morgunblaðið 14. maí 1966 birtir frétt um tónleikana og segir þar meðal annars:
Á efnisskránni sem er mjög fjölbreytt, eru fimm lög eftir Schubert, „Ganymed“, „Dass sie hier gewesen“, „Seligkeit“, „Wanderer’s Nachtlied“ og „Die junge Nonne“. „Lyris “ fjögur lög eftir Luigi Dailapiccola. „Philini“ fjögur Mignan-ljóð eftir Mugo Wolf, „Trois Chansons de Bilitis“ eftir Debussy og Kantata eftir Johan Carter.
Adele Addisson er svo kunn söngkona bæði af hljómleikum og hljómplötum og einnig eftir að hafa sungið hér með Sinfóníuhljómsveitinni að óþarfi er að kynna hana nánar.

Andrés Segovia (1893-1987)
Spánverjinn Segovia var einn virtasti klassíski gítarleikari 20. aldar. Hann hélt tónleikar fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói 19. og 20. nóvember 1958 við mikla hrifningu: „Það er bókstaflega nauðsynlegt að sjá manninn leika til þess að trúa því, að hægt sé að gera annað eins við gítar og þessi mikli snillingur gerir…“ Alþýðublaðið 20. nóvember 1958
Páll Ísólfsson skrifaði í Morgunblaðið 21. nóvember 1938:
Það er hollt og gott að hlusta á Segovia; menn verða að hlusta óvenju vel til að ekkert fari forgörðum. Hann hvíslar oft tónunum að okkur, og blæbrigðin eru oft töfrandi, en túlkunargáfa hans er fullkomin og hrein eins og lindin sem sprettur undan steininum.
Segovia hélt þriðju tónleikana sem voru opinberir og fóru fram 21. nóvember í Austurbæjarbíói á 65 ára afmælisdegi gítarleikarans.
Nánar um Andrés Segovia:
- „… mesta núlifandi gítarsnillinginn.“ Vísir 20. nóvember 1958.
- Wikipedia

Blanche Thebom (1915-2010)
Thebom var messósópran og söng meðal annars við Metropólitanóperuna í New York. Hún kom til Íslands 1954 og söng 7. og 8. júní í Austurbæjarbíói fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagins. Á efnisskránni vour aríur úr Carmen eftir Bizet og Nabucco eftir Verdi auk laga eftir Händel, Brahms, Ravel, Foster og fleiri. Meðleikari á píanó var William Hughes.
Í Vísi 8. júní segir að viðtökurnar hefi verið „sérlega hjartanlegar“ og að söngkonan hafi þurft að syngja sex aukalög.
Nánar um Blanche Thebom:
Metropolitan söngkonan Blanche Thebom kemur til Reykjaíkur. Morgunblaðið 2. júní 1954.

Christian Ferras
„Fremsti fiðlusnillingur Frakka heldur hljómleika hér í kvöld“ var yfirskrift fréttar í Alþýðublaðinu 12. maí 1954. Tilefnið var koma Ferras og píanóleikarans Pierre Barbizet til Reykjavíkur þar sem þeir héldu tónleikar í Austurbæjarbíói fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins 12. og 13. maí. Vikar fjallar um tónleikana í Morgunblaðinu 15. maí 1954 og segir m.a.:
Um þessa tónleika þarf ekki að segja margt, fremur en aðra, þar sem listamennirnir sameina þá tvo hluti, fagra og listræna túlkun og „þetta“, sem enginn veit hvað er, en er samt í raun og veru innihald allrar sannrar listar, snýr sér beint til hjartans með þeim afleiðingum að fólk gengur úr jafnvægi hversdagsleikans og afklæðist hinni þröngu treyju hans.
Christian Ferras hefur tileinkað sér leikni, sem jafnvel nú, á dögum hinnar miklu „perfektionar“, er fremur sjaldgæft fyrirbæri. Það er eins og hugurinn þjóti yfir strengina en engin mannshönd komi þar nærri. Það hefur verið sagt, að það sem eftir sitji er maðurinn hefur gleymt því sem hann hefur lært, sé kjarni lærdómsins. Maður næstum því hræðist þessa ofboðslegu leikni…
B. F. var ekki síður hrifinn í Þjóðviljanum 1. júní :
Annars var hér ekki að ræða um fiðlutónleika í venjulegum skilningi, því að svo glæsilegur sem leikur Ferras er, verður varla sagt, að hann léki þarna neitt aðalhlutverk, nema þá í mjög afmörkuðum skilningi. Það er auðfundið, að fiðluleikaranum (og raunar þeim báðum) er annt um að láta það koma fram, að hér séu jafningjar á ferðinni, en ekki einleikari og aðstoðarmaður. Það er líka sannast að segja, að Barbizet er slíkur snillingur á sitt hljóðfæri, að í þessu verður ekkert óeðlilegt eða tilgerðarlegt…
Ferras og Barbizet heldur einnig tónleika í Hafnarfirði og á Akureyri 20. maí á vegum Tónlistarfélags Akureyrar og var hrifningin yfir leik þeirra þar ekki síðri áður í Reykjavík (Sjá umfjöllun íDegi 2. júní og Verkamanninum 4. júní 1954)
Frekari upplýsingar:
Christian Ferras á Wikipedia
Christian Ferras á YouTube

Emil Telmányi (1892-1988)
Ungverjinn Telmányi er meðal annars þekktur fyrir hljóðritanir af partítum og sónötum Bachs fyrir sóló fiðlu. Þar notar hann sér-hannaðan boga sem gerir mögulegt að leika á þrjá eða jafnvel alla fjóra strengi fiðlunnar í einu.
Telmányi hélt mikið á lofti danska tónskáldinu Carl Nielsen (1865-1931) og hljóðritaði tónverk hans fyrir fiðlu. Nilesen samdi fiðlukonsert fyrir Telmányi (1911) en hann var um tíma var giftur Anne Marie, dóttur tónskáldsins.
Telmányi kom til Íslands í október 1925 og hélt þá „7 tónleikar á 16 dögum – í Nýja Bíó – og alltaf fyrir fullu húsi“, eins og hann segir frá í blaðaviðtali árið 1939. Meðleikari Telmányis í Nýja Bíói var Emil Thoroddsen en einnig lék hann í Dómkirkjunni með Páli Ísólfssyni – sjá umfjöllun Árna Thorsteinsonar.
Telmanyi kom aftur til Íslands 1939 á vegum Tónlistarfélagsins og hélt tvenna tónleika í Gamla bíói með aðstoð hljóðfæraleikara úr Hljómsveit Reykjavíkur; eiginkona hans lék með á sembal. Einnig hélt hann tónleika í Dómkirkjunni með Páli Ísólfssyni – sjá gagnrýni í Alþýðublaðinu og Morgunblaðinu .
Nánar um Emil Telmanyi:

Erling Blöndal Bengtsson
Erling Blöndal Bengtsson á íslenska móður og danskan föður og var aðeins fjögurra ára þega hann kom fyrst fram opinberlega sem sellóleikari. Hann kom oft til Íslands og lék þá gjarnan fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins.
Þessi ljósmynd er frá árinu 1958 þegar Erling lék í Austurbæjarbíói 28. og 29. maí með Ásgeiri Beinteinssyni píanóleikara. Á efnisskránni voru Adagio og Allegro eftir Boccherini, Sónata í A-dúr op. 69 eftir Beethoven, Svíta nr. 3 í C-dúr eftir Bach, Melódía í F-dúr eftir Rubinstein, Rondó eftir Weber, Piece en forme de Habanera efir Ravel og Rapsódía nr. 1 eftir Bartok.
Tónleikarnir þóttu afar vel heppnaðir og sagði Páll Ísólfsson m.a. í Morgunblaðinu 30. maí
um Erling: „Hann er í tölu hinna útvöldu á sínu sviði og á aðeins fáa sína jafningja“. Um Ásgeir Beinteinsson sagðir Páll: „Leysti hann hlutverk sitt af hendi af mikilli prýði og sýndi sem fyrr sína miklu hæfileika sem píanóleikari.“
Auk tónleika Tónlistarfélagsins lék Erling í Neskirkju 1. júní með Þuríði Pálsdóttur og Páli Ísólfssyni, á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins 2. júní og 3. júní með Sinfóníuhljómsveitinni í Austurbæjarbíói undir stjórn Páls Pampichlers.
Nánar um Erling Blöndal:

Erling Blöndal Bengtsson
Erling Blöndal Bengtsson á íslenska móður og danskan föður og var aðeins fjögurra ára þega hann kom fyrst fram opinberlega sem sellóleikari. Hann kom oft til Íslands og lék þá gjarnan fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins.
Þessi ljósmynd er frá árinu 1958 þegar Erling lék í Austurbæjarbíói 28. og 29. maí með Ásgeiri Beinteinssyni píanóleikara. Á efnisskránni voru Adagio og Allegro eftir Boccherini, Sónata í A-dúr op. 69 eftir Beethoven, Svíta nr. 3 í C-dúr eftir Bach, Melódía í F-dúr eftir Rubinstein, Rondó eftir Weber, Piece en forme de Habanera efir Ravel og Rapsódía nr. 1 eftir Bartok.
Tónleikarnir þóttu afar vel heppnaðir og sagði Páll Ísólfsson m.a. í Morgunblaðinu 30. maí
um Erling: „Hann er í tölu hinna útvöldu á sínu sviði og á aðeins fáa sína jafningja“. Um Ásgeir Beinteinsson sagðir Páll: „Leysti hann hlutverk sitt af hendi af mikilli prýði og sýndi sem fyrr sína miklu hæfileika sem píanóleikari.“
Auk tónleika Tónlistarfélagsins lék Erling í Neskirkju 1. júní með Þuríði Pálsdóttur og Páli Ísólfssyni, á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins 2. júní og 3. júní með Sinfóníuhljómsveitinni í Austurbæjarbíói undir stjórn Páls Pampichlers.
Nánar um Erling Blöndal:

Eugene Istomin
Bandaríkjamaðurinn Eugene Istomin lék fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói 2. og 3. febrúar 1956. Á efnisskránni voru verk eftir Bach, Haydn, Beethoven, Schumann, Debussy, Chopin og Abram Chasins.
„Stórbrotnir tónleikar“ er yfirskrift stuttrar umfjöllunar Páls Ísólfssonar um tónleikana í Morgunblaðinu 7. febrúar 1956:
… Um þessa tónleika hlýt ég að verða fáorður. Þeir voru í alla staði stórkostlegir. Þessi ungi, þroskaði snillingur er einn í hópi hinna fáu stóru. Allt leikur í höndum hans, og allt túlkað að djúpum skilningi, þrótti og skaphita. Heimsóknir slíkra manna eru stórviðburður, sem aldrei verður fullþakkaður.
Istomin lék í Hafnarfirði 6. febrúar og daginn eftir á æskulýðstónleikum á vegum Heimdallar í Austurbæjarbíói.
Nánar um Eugene Istomin:
Ameríski pianósnillinguinn Eugene Islonin leikur hér Morgunblaðið 1. febrúar 1956

Gerard Souzay (1918–2004)
Gerard Souzay (1918–2004)
Baritónsöngvarinn Gerard Souzay og píanóleikarinn Dalton Baldwin voru á Íslandi 1961 og stóð Tónlistarfélagið fyrir opinberum tónleikum þeirra í Austurbæjarbíói 8. maí.
Frekari upplýsingar:
„Situr á Borg með trefil um hálsinn“. Morgunblaðið 10. maí 1961.

Julius Katchen (1926–1969)
Bandaríski píanóleikarinn Katchen hélt tónleika í Austurbæjarbíói fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins 22. og 23. september 1955. Á efnisskránni voru verk eftir Bach, Beethoven, Brahms og Chopin. E. P. skrifar í Tímann 27. september 1955:
Þó að nota verði hástiga lýsingarorð ávallt með mikilli varúð, er ekki hægt að komast hjá því að nota þau óspart um hann, ef sannleikurinn á að njóta sín.
Hann er fullkominn píanóleikari, á sama hátt og Dierrich Fischer-Dieskau er fullkominn söngvari, að svo miklu leyti sem hægt er að tala um mannlega fullkomnun. Ákaflyndi hans, hjartnæmi og einbeitni er laust við allt tildur, prjál og væmni. Túlkun hans einkennist af heilsteyptum samruna hjarta og hugsunar, enda leikur hann eins og sá sem valdið hefir. Tæknikunnátta hans er stórkostleg, og taugaviðbrögðin svo eldsnör að furðu gegnir.
Katchen lék svo á æskulýðstónleikum 26. september sem Tónlistarfélagið stóð fyrir. Aðgangur var öllum heimill gegn 15 króna aðgangseyri.
Nánar um Julius Katchen:
Júlíus Katchen leikur hér á æskulýðstónleikum Morgunblaðið 25. september 1955

Manuela Wiesler (1955-2006)
Á Íslandi kom Manuela fyrst fram á tónleikum í Norræna Húsinu 17. september 1973.
Hún og maður hennar, Sigurði I. Snorrasyni klarínettuleikari, voru þá að ljúka námi í Vínarborg.
Manuela var afburða tónlistarmaður, einstakur flytjandi og geislandi persónuleiki. Hún lék mikið nýja tónlist og tónskáld kepptust um að semja fyrir hana. Einnig hljóðritaði hún talsvert og var virk í kammermúsík. 1976 hlutu þau Snorra Sigfúsi Birgissyni fyrstu verðlaun á norrænni kammertónlistahátíð á vegum NOMUS.
Manuela hafði mikil áhrif þann tíma sem hún bjó á Íslandi. Hún átti um tíma virtan feril sem alþjóðlegur sólisti og flutti frá Íslandi á 9. áratugnum. Hún bjó um tíma í Svíþjóð en settist loks að í Vínarborg. 2001 hætti hún flautuleik.
Meira um Manuelu:
YouTube
YouTube

Nicanor Zabaleta (1907–1993)
Hörpuleikur hafði ekki heyrst á Íslandi þegar Spánverjinn Zabaleta hélt tónleika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins 13. og 14. apríl 1955. Einnig lék hann á tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfiðri 15. apríl.
Á efnisskrá tónleikanna voru: Etíður eftir Boihsa, Tilbrigði eftir Beethoven, Sónötur eftir H. E. Mehul og F. A. Rosetti, Tilbrigði eftir Parish-Alvars, Prelúdía eftir Prokofieff, Næturljóð eftir G. Pattaluga og Jazz-Band eftir M. Tournier; allt tónverk sérstaklega samin fyrir hörpu.
B. G. skrifar um tónleikana í Vísi 15. apríl og segir meðal annars:
Fyrir þá mörgu, sem ekki höfðu átt þess neina von að heyra hörpuleik að nokkru ráði hérna megin grafar, var það mikil hressing og einstakur viðburður, að hlíða á þennan fingrafima Spánverja seiða hina mjúku, mjóslegnu hörputóna úr hljóðfæri sínu. Er sá strengleikur raunar alkunnur í kveðskap vorum, fornum og nýjum, en fæstir Íslendinga hafa nokkurn tíma heyrt hann með sínum jarðnesku eyrum. Slík er fátækt vor, að oss skortir enn þetta mikilvæga hljóðfæri í siníóníuna.
E. P. skrifar í Tímann 24. apríl :
… Hendur meistarans Zabaleta snertu strengina og flögruðu um hörpuna eins og lífi, skyn semi og tilfinningum gæddar sjálfstæðar verur. Leikni hans, kunnátta og innsæi er frábær og er nær óskiljanlegt hversu fjölbreytt, skemmtilegt og göfugt hljóðfæri harpan verður í höndum hans. …
22. apríl lék Zabaleta með Sinfóníuhljómsveitinni í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Olavs Kellands. Á efnisskránni voru Forleikur að Síðdegisævintýri skógarpúkans eftir Debussy og Konsertþátur fyrir hörpu og hljómsveit op. 154 eftir Saint-Saëns.
Nánar um Nicanor Zabaleta:

Taru Valjakka (f. 1938)
Finnska sópransöngkonan Taru Valjakka söng fyrst á Listahátíð í Reykjavík 1972. Hún kom aftur til Íslands ári síðar og söng einsöng í Sköpuninni eftir Haydn sem flutt var á tónleikum Sinfóníuhljómsveit Íslands í febrúar 1973.
Þriðja heimsókn söngkonunnar var þegar hún söng í Austurbæjarbíói á tónleikum Tónlistarfélagsins 26. janúar 1974. Árni Kristjánsson var við píanóið. Efnisskráin spannaði óvenju vítt svið tónlistarsögunnar því flutt voru verk eftir átta tónskáld, það elsta fætt 1625 og það yngsta 1935 (Aulis Sallinen).
Tónlistargagnrýnandi Vísis var hrifinn og segir meðal annars:
Fyrst er ég leit i efnisskrána, varð ég undrandi hve söngkonan valdi margbreytt viðfangsefni. Það er skemmst frá því að segja, að hún hefur vitað vel hvílíkt vald hún hafði á þessari margbreytilegu efnisskrá, eins og reyndar kom i ljós. Var í senn undravert og heillandi hvernig hún lagaði sig að öllum þessum tónskáldum. Hún gjörheillaði áheyrendur, ekki einungis með afburða tónfegurð og túlkun, heldur og með næstum rafmagnaðri framkomu á sviði.
Raddsvið Valjakka er mikið, margbreytilegt og jafnt, hvort heldur er á neðra sviði eða efra, öndunartækni hennar með afbrigðum fullkomin. Aldrei varð maður þess var að hún þvingaði röddina, ekki einu sinni á hæstu tónum. Stórkostlegt var á að hlýða hvernig hún breytti röddinni úr sterkum og voldugum söng á næstum augabragði i hárfínan og styrkleikinn (Subito pianissimo).
Um frammistöðu píanóleikarans segir gagnrýnandinn:
Sjaldan hefi ég heyrt Árna Kristjánsson leika betur. Ég gæti trúað, að Gerald Moore hefði svitnað, ef hann hefði verið meðal áheyrenda. Sama má segja um Árna Kristjánsson og Valjakka. Hann lagaði sig á næsta óskiljanlegan og ótrúlegan hátt að hinum gerólíku stíltegundum, sem á efnisskránni voru. Það er trú mín, að Árni viti hvaðan tónlistin kemur, og þangað kemst hann. Það gera ekki nema tiltölulega fáir tónlistarmenn.
Fagnaðarlátum ætlaði seint að linna og söng listakonan tvö aukalög, við mikla hrifningu áheyrenda. – Mættum við fá meira að heyra til Valjakka og það sem fyrst. Þessir tónleikar verða örugglega mörgum ógleymanlegir. Þessir tveir listamenn settu sitt „brennimark“ á áheyrendur og það mun seint fyrnast.
Nánar um Taru Valjakka:
„Fegurðin og valdið.“ Tónlistargagnrýni í Vísi 30 janúar 1974
Viðtal við Taru Valjakka. Morgunblaðið 24. janúar 1974

Francisco Lazaro (f. 1934)
Spanski tenórinn Lazaro söng fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins 26. og 27. janúar 1965 í Austurbæjarbíói. Meðleikari á píanó var Árni Kristjánsson en á efnisskránni voru ítalskar óperuaríur.
Þorkell Sigurbjörnsson fjallar um tónleikana í Vísi 5. febrúar 1965 :
Samstarf listamannanna var í alla staði hið ákjósanlegasta og er samt píanistanum skorinn hinn kostulegasti stakkur með öllum þessum umskrifum á hljómsveitarmúsik. En það háði Árna ekki, hann túlkaði hin sérkennilegustu „orkeströlu“ furðuverk af fyllstu sannfæringu.
Francisco Lazaro er enginn lítill söngvari. Hann gerði meira en að syngja þetta úrval af „humm“ sælustu laglínum róman tísku óperubókmenntanna, hann sviðsetti og túlkaði, gerði áheyrendur að þátttakendum í örlögum og tilfinningum hinna ólíkustu persóna. Okkar fátæki bær eignaðist lítið „þykjast“-óperuhús i gærkvöldi.

Dagmar Simonkova (f. 1936)
Tékkneski píanóleikarinn Dagmar Simonkova hélt tónleika í Austurbæjarbíói 9. desember 1974 á vegum Tónlistarfélagsins. Á efnisskránni var Tre Ditirandi op. 65 eftir Tomasek, Karneval op. 9 eftir Schumann, Fjórar prelúdíur eftir Debussy og siðast fjórar etýður eftir Chopin.
12. desember lék Simonkova Píanóknosert nr. 1 eftir Tsjaikovsky með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói undir stjórn Páls P. Pálssonar.

Blaise Calame
Calame og píanóleikarinn Jean-Claude Ambrosini héldu tóleika á vegum Tónlistarfélagsins 18. og 19. október 1965 í Austurbæjarbíói. Á efnisskránni voru verk eftir Vivaldi, Beethoven, Debtoussy, Paganini og Wieniawski.
Ef marka má umfjöllun Jóns Þórarinssonar átti fiðluleikarinn ekki góðan dag:
Tónninn er að vísu mikill, en hrjúfur og oft urgkenndur, og tónmyndun (intonation) einatt harla ónákvæm. Allt þetta kom fram í fyrstu viðfangsefnunum, Konsert í g-moll eftir Vivaldi og sónötu í D-dúr, op. 12 nr. 1, eftir Beethoven, þótt annars væri talsverður myndarbragur á meðferð þeirra. Afdrifaríkari urðu ágallarnir í sónötunni eftir Debussy, og um þverbak keyrði í þrem kaprísum fyrir einleiksfiðlu eftir Paganini. Sú músík er þannig vaxin, að ekki ættu að snerta á henni til opinbers flutnings aðrir en virtúósar, sem hafa alla tækni fyllilega á valdi sínu, ef hún er þá ekki alveg látin eiga sig.

Gaspar Cassado (1897-1966)
Sellóleikarin og tónskáldið Cassado fæddist í Barcelona á Spáni og hóf sellónám hjá Pablo Casals 10 ára gamall.
Cassado hélt tónleika í Austurbæjarbíói 20. og 21. október 1964 fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagins. Eiginkona hans, Chieko Hara (1914-2001), lék með á píanóið. Á efnisskránni var Tokkata eftir Frescobaldi, Sjö tilbrigði við stef eftir Mozart eftir eftir Beethoven, Sónata í D-dúr eftir Mendelssohn og Sónata í F-dúr, Op. 99 eftir Brahms.
Tíminn, 21. október 1964 , segir svo frá:
Hvorugt þeirra hjóna hefur áður komið til íslands, en Cassado kvaðst fyrst hafa kynnzt íslandi við lestur frönsku skáldsögunnar „Á íslandsmiðum“ eftir Pierre Loti. Fyrsti íslendingur, er hann kynntist persónulega var tólf ára piltur á stuttbuxum í Kaupmanna höfn, Erling Blöndal Bengtson. Aftur híttust þeir mörgum árum síðar í bílaborginni Detroit vestur í Bandaríkjunum og dró Cassado ekki dul á það, að þessi ungi íslendingur hafi þá þegar verið orð inn keppinautur sellósnillinga heimsins.
Frekari upplýsingar:
Gaspar Cassadóá Wikipedia.
Gaspar Cassadó á YouTube.
Chieko Hara á YouTube.

Das Haydn-Trio
Haydn tríóið (Das Haydn-Trio) lék fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins 21. og 22 nóvember 1966. Tíóið skipuðu Walter Kamper – píanó, Michael Schnitzler – fiðla og Walter Schulz – selló. Á efnisskránni voru Tríó í F-dúr eftir Joseph Haydn, útsetningar eftur Frank Martin á Írskum þjóðlögum og Tríó í Es-dúr op. 100 eftir Schubert.

Margaret Kilpinen (1896-1965)
Kilpinen var píanóleikari og kom til Íslands í maí 1965 ásamt messó-sópran söngkonunni Margit Tuure. Þær héldu tónleika í Austurbæjarbíói 18. og 19. maí og einnig á Akureyri, Akranesi, Selfossi og Hvolsvelli.
Tónlistarfélagið og Norræna félagið stóðu að heimsókn þessara finnsku tónlistarkvenna og var tilefnið 100 ára fæðingarafmæli Sibeliusar. Á efnisskrá tónleikanna voru sönglög eftir Sibelius og finnska tónskáldið Yrjö Kilpinen (1892-1959) en hann var eiginmaður Margaretar.
Margit Tuure koma aftur til Íslands í febrúar 1974.
Nánar:
„Við erum jú vinir núna – Finnar og Rússar.“ Stutt viðtal við Margaret Kilpinen og Margit Tuure. Morgunblaðið 29. maí 1965

Nicolas Constantinidis
Píanóleikarinn Nicolas Constantinidis lék á tónleikum Tónlistarfélagsins 17. apríl 1971. Á efnisskránni voru Tilbrigði í F-dúr eftir Haydn, Sónata nr. 2 í D-dúr eftir Prokofiev, Grískt stef eftir Poniridis, Úr dagbók minni eftir Sessions og Noktúrna í C-dúr op. posthumous og Fantasía í F-dúr op. 49 eftir Chopin.
Nánar um Nicanor Zabaleta:

Thomas Magyar (1913-2008)
Ungverski fiðluleikarinn Magyar lék í Austurbæjarbíói fyrir meðlimi Tónlistarfélagsins 12. og 13. nóvember 1951. Dr. Victor Urbancic lék á píanóið en á efnisskránni voru verk eftir Tartini, Paganini, César Frank, Bloch, Prokofieff og Dolmányi.
Þórarinn Jónsson segir í umfjöllun í Alþýðublaðinu 14. nóv. 1951:
Um leik Magyars er það skemmst að segja, að hann er með þeim glæsibrag er framast getur. Tónn hans er grannur og silfurtær í syngjandi laglínum, er þrunginn eldmóði og mikilfengleik, ef svo ber undir. Fingra- og bogatækni Magyars er svo samstæð og örugg, að hvergi her á milli. – Tví-, þrí- og fjórgripa-tækni hans virðist ekki þekkja neina örðugleika. Leikur hans er þrunginn af eðliskennd hins ungverska uppruna hans, en fer aldrei út í öfgar, heldur ber ótvírætt merki snillings á heimsmælikvarða, og minnti það einna helzt á Bronelsaw Huberman.
Meðleikari Magyars var dr. Victor Urbancic. Leysti hann hið erfiða hlutverk sitt af hendi með slíkum afbrigðum, að undrun sætti. Hinn hæverski og smekkvíslegi undirleikur hans í Tartini-sónötunni, meðleikur hans í hinu ægifagra verki César Francks, sem og í öðrum verkum þessa tónleiks, hljóta að vekja menn til íhugunar um fjölhæfni þessa frábæra tónlistarmanns okkar á meðal. …
Magyar lék á opinberum tónleikum í Austurbæjarbíói 14. nóvember en þurfti síðan að fara af landi brott vegna breyttra flugáætlunar. Varð því að fella niður fyrirhugaðir tónleikar á vegum Tónlistarfélagsins í Hafnarfirði.

Tom Krause (f. 1934)
Finnski baritónsöngvarinn Tom Krause hélt tónleika í Austurbæjarbíói á vegum Tónlistarfélagsins 28. og 29. september 1965. Landi hans, Pennti Koskimies, lék á píanóið. Á dagskránni voru lög eftir Hugo Wolff, Richard Strauss, Ravel og Sibelius. Tekið var fram í auglýsingu tónleikanna að sérstaklega hafi verið vandað til tónleikaskrárinnar þar sem frumtextar ljóðanna væru prentaðir með þýðingum Þorsteins Valdimarssonar skálds.
Nánar um Tom Krause: