Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Gjafir

Mandólínhljómsveit Reykjavíkur

Sigurður Þorsteinsson básúnuleikari færði Tónlistarsafni Íslands að gjöf myndir og nótur úr safni Mandólínhljómsveitar Reykjavíkur Mandólínhljómsveit Reykjavíkur starfaði á árunum 1943 til 1949 og hélt nokkra tónleika. Hljómsveitin lék m.a. í útvarp og til eru nokkrar hljóðritanir með leik hljómsveitarinnar. Hér að neðan má lesa ágrip af sögu hljómsveitarinnar en textinn er handrit að útvarpsþætti…

Lesa meira : Mandólínhljómsveit Reykjavíkur

Sænskur barkalúður

Jón Fr. Sigvaldason kom í heimsókn 25. mars ssl. og færði Tónlistarsafni að gjöf sænskan Närverlur, eða barkarlúður. Nánari frásögn má fá finna af gjöfinni og hljóðfærinu hér að neðan. Barkalúðrar Finna má tvær gerðir barkalúðra. Önnur gerðin er er byggð úr löngum barkaræmum, og eru mjórri í annan endann, sem flettast í spíral af…

Lesa meira : Sænskur barkalúður

Þjóðhátíðarlög Oddgeirs

Hjónin Sigríður Jóna Kristinsdóttir og Guðni Agnar Hermansen bjuggu allan sinn búskap í Vestmannaeyjum. Meðan nótnanna sem bárust safninu eruýmis þjóðhátíðarlög eftir Oddgeir Kristjánsson og Ása í Bæ. Tónlistarsafn Íslands þakkar Jóhönnu og Kristni fyrir góða gjöf.

Lesa meira : Þjóðhátíðarlög Oddgeirs

Gjöf Jóhönnu og Kristins Hermansen

Jóhanna og Kristinn Hermansen færðu tónlistarsafni að gjöf nótnabunka úr búi Sigríðar Jónu Kristinsdóttur og Guðna Agnars Hermansen Hjónin Sigríður Jóna Kristinsdóttir og Guðni Agnar Hermansen bjuggu allan sinn búskap í Vestmannaeyjum. Meðan nótnanna sem bárust safninu eru ýms þjóðhátíðarlög eftir Oddgeir Kristjánsson og Ása í Bæ. Tónlistarsafn Íslands þakkar Jóhönnu og Kristni fyrir góða gjöf.

Lesa meira : Gjöf Jóhönnu og Kristins Hermansen

Gjöf Haldóru Torfadóttur

Halldóra Torfadóttir færði Tónlistarsafni að gjöf nótnabunka með lögum eftir Kristinn Rey og Maríu Brynjólfsdóttur. Meðal nótnanna var handrit að verkinu Islander Suite III fyrir Sinfóníuhljómsveit eftir Rudolf Cech-Böham, í píanóútsetningu. Samkvæmt bréfi sem fylgir handritinu lék Rudolf í Sinfóníuhljómsveitinni árið 1971 og byggir hann verkið á lagi eftir Jón Laxdal. Nótur þessar koma allar…

Lesa meira : Gjöf Haldóru Torfadóttur

Eiður og Eygló gefa nótur

Eiður Guðnason og kona hans, Eygló Helga Haraldsdóttir færðu Tónlistarsafni að gjöf nótnabunka með frumútgáfum af ýmsum íslenskum nótum. Meðal laganna sem þarna má finna eru sálmalög Guðrúnar Böðvarsdóttur, Á föstudaginn langa og Ég er að byggja. Þá eru tvö hefti með samtals átta lögum eftir Jóhönnu S. Sigurðardóttur, Dagsetur eftir Vestur-íslensku tónlistarkonuna Elmu Gíslason.…

Lesa meira : Eiður og Eygló gefa nótur

Gamlar hljóðritanir

Sesselja Halldórsdóttir, víóluleikari og bókavörður Tónlistarskólans í Reykjavík, færði Tónlistarsafni Íslands til varðveislu hljóðrit frá níunda ártugnum þar sem á leika m.a. Hlíf Sigurjónsdóttir, Pétur Jónasson, Þórhallur Birgisson, Þorsteinn Gauti Sigurðsson. Einnig hljóðritanir frá hátíðinni Und Nordis Musik sem haldin var á Íslandi árið 1977.

Lesa meira : Gamlar hljóðritanir

Tónverk Knúts R. Magnússonar

Knútur R. Magnússon og kona hans, Guðrún Leósdóttir heimsóttu Tónlistarsafn Íslands í dag og afhentu safninu handrit að tónsmíðum Knúts en þekktasta lag hans er Hreðavatnsvalsinn. Knútur samdi lagið undir listamannsheitinu Reynir Geirs. Knútur R. Magnússon er landsþekktur dagskrárgerðarmaður af Ríkisútvarpinu Rás 1, en hann starfaði á Tónlistardeild útvarpsins í árafjöld. Hann vann um tíma…

Lesa meira : Tónverk Knúts R. Magnússonar

Myndabók Fríðu

Helga Jörgensen gaf Tónlistarsafni Íslands útklippubók, nótur og plötu sem minna á öll þau ár sem móðir hennar, Þórunn Hólmfríður Guðmundsdóttir Norðdahl (Fríða) starfaði í kórum. Fyrir skömmu kom Helga Jörgensen með ýmis gögn úr fórum móður sinnar, Þórunnar Hólmfríðar Guðmundsdóttur Norðdahl, en Þórunn (Fríða) hafði sungið allt sitt líf í kórum. Má þar nefna…

Lesa meira : Myndabók Fríðu

Gömul nótnabók

Baldur Már Arngrímsson gítarleikari og fyrrum hljóðmaður hjá Ríkisútvarpinu og sölumaður í hljóðfæraverslunum afhenti Tónlistarsafni Íslands gamla bók með handskrifuðum nótum af íslenskum sönglögum. Eftir að hafa skoðað bókina komumst við helst að þeirri niðurstöðu að hún hafi verið í eigu Guðmundar Jónssonar söngvara. Byggjum við þá niðurstöoðu á því að við nokkur af lögunum…

Lesa meira : Gömul nótnabók