Gjöf Haldóru Torfadóttur

Halldora_Torfadottir

Halldóra Torfadóttir færði Tónlistarsafni að gjöf nótnabunka með lögum eftir Kristinn Rey og Maríu Brynjólfsdóttur. Meðal nótnanna var handrit að verkinu Islander Suite III fyrir Sinfóníuhljómsveit eftir Rudolf Cech-Böham, í píanóútsetningu. Samkvæmt bréfi sem fylgir handritinu lék Rudolf í Sinfóníuhljómsveitinni árið 1971 og byggir hann verkið á lagi eftir Jón Laxdal. Nótur þessar koma allar úr dánarbúi Magnúsar Torfa Ólafssonar fyrrverandi ráðherra. Færum við Haldóru okkar bestu þakkir.

Tónlistarsafn Íslands, Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík | Sjá á korti
Sími 525 5754 / 824 6413 | Netfang: ts@tonlistarsafn.is