Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Jónas Helgason og Brynjólfur Þorláksson dómkirkjuorganistar

Þátturinn var á dagskrá Rásar 1, 22. febrúar 2000


Við munum nú halda áfram þar sem frá horfði í umfjöllun um tónlistarlífið og tónlistarmenn á 19 öldinni.

Fyrir skemstu minntist ég lítilsháttar á Pétur Guðjohnsen. Honum hefur einnig verið gerð góð skil hér á rás eitt á seinasta ári og því verður ekki fjallað ítarlegar um hann hér. En nú er komið sporgöngumönnum hans og byrjum við þá á Jónasi Helgasyni. Áður en við hefjum þá umfjöllun skulum við heyra lagið Sólu særinn skýlir eftir Jónas Helgason við texta Steingríms Thorsteinsson. Það er Liljukórinn sem syngur undir stjórn Jóns Ásgeirssonar.

Við heyrðum Liljukórinn undir stjórn Jóns Ásgeirssonar flytja lagið Sólu særinn skýlir eftir Jónas Helgason við ljóð Steingrím Thorsteinssonar. Hljóðritunin er frá árinu 1962.

Ef við skoðum söguna á þeim tíma þegar Dómkirkjan var Dómkirkjan í Reykjavík, þ.e. áður en margar aðrar stórar kirkjur komu og tónlistarlífið jókst til muna í kirkjum landsins, þá hafa organsitar Dómkirkunnar alltaf verið leiðandi menn í tónlistarlífinu. Má þar minnast á Pétur Guðjohnsen sem ég minntist á áðan, arftaka hans, Jónas Helgason, Brynjólf Þorláksson sem var arftaki Jónasar, Sigfús Einarsson og í fram haldi af honum Pál Ísólfsson. Í dag er allt tónlistarumhverfið breytt á þann hátt að vart er hægt að tala um neinn einn sem leiðir tónlistarlífið á sama hátt og á 19. öldinni og fram eftir þeirri 20.

Jónas Helgason fæddist 28. febrúar árið 1839. Foreldrar hans voru Helgi Jónsson trésmiður og Guðrún Jónsdóttir. Að lokinni fermingu lærði hann járnsmíð og varð fullnema í þeirri iðn 1856 og gerðist þá sjálfstæður járnsmiðu. Um Helga má lesa í heimildum:

Ýmsum hinna elztu núlifandi Reykvíkinga mun Jónas enn í minni sem smiður, þar sem hann stóð í smiðjudyrunum til að kæla sig, kafrjóður í kinnum, berarmaður upp fyrir olnboga, með leðursvuntuna fram á sér og kallast á við þá, sem fram hjá fóru eða spurðist tíðinda úr bænum. Ekki fór neitt sérstakt orð af Jónasi sem jarnsmiði og mun þó ekki í þeirri grein hafa staðið örðum að baki, nema síður væri, en sennilega hefur alkunnur áhugi hans á sönglistinni og merkilegt starf hans í þágu hennar fremur orðið til að skyggja á iðnaðamannstarfið í vitund almennings.

Síðar segir:

Eftir að Jónasi smið hafði verið falið organleikarastarfið og söngkennsla í skólum upptók tíma hans, lagðist járnsmíðin á hilluna og leigði Jónas þá eða seldi smiðjuna. Þó voru einstaka hestamenn hér í bænum, sem varla trúðu öðrum fyrir járningu hesta sinna, og því gat það komið fyrir enda alllöngu eftir að sönglistin hafði tekið Jónas algerlega í þjónustu sína, að sjá mátti dómkirkjuorganistann snöggklæddan vera að járna góðhesta gamalla viðskiftavina, er ekki treystu öðrum til að vinna það verk jafn vel og honum.

Í eftirmælum um Jónas í Ísafold segir m.a.:

Kom það iðulega fyrir á hinum fyrstu árum, er hann átti með sig sjálfur, að hann hljóp frá steðjanum til að syngja við greftanir og tók enga borgun fyrir. Hann hafði svo gaman af að syngja, að hann horfði ekki í að láta tefja sig frá verki, þótt ekkert væir í aðra hönd.

Ennfremur segir:

Af þessari ást hans á söngnum leiddi eðlilega, að hann kynntist snemma þeim mönnum á hans reki, sem höfðu sönghæfileika og gaman að söng, og með þeim gekk hann í félagskap 1862. Var það fálag nokkru síðar nefnt Harpa og starfaði í full 30 ár, oftast af mesta kappi og jafnan með sóma. Var Jónas alla ævi kennari þess og stjórnandi.

Tilvitnun lýkur

Við heyrðum Liljukórinn undir stjórn Jóns Ásgeirssonar flytja lagið Við hafið ég sat eftir Jónas Helgason við ljóð Steingríms Thorsteinssonar.

Jónas hafði hlotið dálitla menntun í tónlist – lærði snemma á fiðlu og síðar á harmoníum. Hann lék á harmoníumið í dómkirkjunni en fiðluna notaði hann við söngkennslu í skólum. Hann fór veturlangt til Kaupmannahafnar og lærði þar dálítið í tónlist. Það má vel ætla sér að frú Olufa Finsen hafi greitt götu hans þar en hún var persónlulegur vinur Gades-fjölskyldunnar. Gade og Jón urðu vinir og sást oft til þeirra félaga á götu. Jónas fékk í gegnum þennan kunningsskap við Gade aðgang að hinum mætustu kennurum í Kaupmannahöfn og virtu allir kennarar hans hann mikils. Sagan segir að Jónasi hafi boðist staða í Kaupmannahöfn eftir að hann hafði starfað hér um tíma, en kosið að sitja heima. Árið 1876 varð Jónas kennari í söng við barnaskólann og kvennaskólann í Reykjavík og haustið eftir, 1877 er Pétur Guðjohnsen var fallinn frá, varð hann orgnaisti við dómkirkuna. Svo mikill var áhugi hanns á að kenna söng að hann gekk í mörg ár tvisvar í viku um allan veturinn til kennslu í barnaskóla Seltjarnarness í Mýrarhúsum. Í gegnum 37 ára starf að tónlistarmálum lagði Jónas grundvöllinn að alþýðusöng þjóðarinnar með kennslu sinni og útgáfu söngheftanna. Nú einnig má minnast á fjórraddaða kirkjusöngsbók sem hann gaf út 1885 og viðbæti við hana 1889. Sigfús Einarsson segir í formála að 2. útgáfu þessarar bókar um Jónas: hann lagði grundvöllinn og vann mest og best í þarfir kirkjusöngsins hér á landi.

Sem dómkirkjuorganista bar honum skylda til að kenna ókeypis organistaefnum sem þess óskuðu. Þegar Jónas féll frá höfðu nánast allir organistar landsis notið kennslu hans. Hann studdi að því að harmoníum voru fengin í kirkjur landsins. Jónas Helgason dó úr hjartaslagi 2. september 1903, 64 ára að aldri.

Við heyrðum hér eitt þekktasta lag Jónasar Helgasonar – Lýsti sól, stjörnustól við ljóð Matthíasar Jochumssonar. Það var Langholtskórinn sem flutti undir stjórn Jóns Stefánssonar.

Það er athyglisvert með söngskáldskap Jónasar að hann samdi fá lög. Fyrsta veraldlega lagið sem samið er af Íslendingi og prentað hér á landi birtist í Göngu-Hrólfi 17. janúar árið 1873, en það er lagið Andvarp eftir Jónas Helgason við ljóð Árna Gíslasonar. Lagið birtist þarna einraddað, en er til í fjórradda útsetningu Hallgrims Helgasonar og birtisti hún í tímaritinu Jörð árið 1941.

Við heyrðum lagið Andvarp eftir Jónas Helgason við ljóð Árna Gíslasonar í fjögurra radda útsetningu Hallgríms Helgasonar. Það var Alþýðukórinn sem söng undir stjórn Hallgríms Helgasonar.

Ástæða væri til að fjalla miklu nánar um líf og starf Jónasar Helgasonar, en hér verður látið staðar numið að sinni og í staðinn minnst á arftaka hans, Bryjólf Þorláksson.

Bryjólfur fæddist árið 1867- og lést árið 1950. Hann tók við sem organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík við fráfall Jónasar Helgasonar.

Á Brynjólfi fór að bera á tónlistarsviðinu um og eftir 1890. Hann var fyrst og fremst söngstjóri og náði fljótt tökum á harmoníumleik. Um skeið mun hann hafa verið manna færastur hér á landi á því sviði. Hann kom oft fram sem einleikari á orgelið og lék einnig með öðrum. Hann tók síðan við orgelsstarfinu í Dómkirkjunni af Jónasi Helgasyni. Hann sótti sínar tónlistargáfur í föðurættina en faðir hans var Þorlákur Þorkelsson og æfði hann sönghóp á Seltjarnarnesi og var einnig kunnur sem langspilsleikari. Hann lærði að þekkja nótur sem unglingur, hjá Guðmundi nokkrum Einarssyni í Bollagörðum, sem síðar varð bóndi á Nesi við Seltjörn. Á þessum árum átti hann ekkert hljóðfæri en fékk að æfa sig hjá Benedikt Ásgrímssyni gullsmiði á Vesturgötunni, en Benedikt leyfði ungum mönnum að æfa sig á stofuorgelið sitt án endurgjalds. Síðan lærði Brynjólfur að leika á píanó hjá Önnu Petersen, móður Helga Pjeturss. Það er ekki ólíklegt að einmitt píanónámið hafi fleytt honum áfram í orgelleiknum. Frú Anna hafði lært í Kaupmannahöfn og segir sagan að hún hafi haft nemendahljómleika í reykjavík og hafi nemendur hennar komið fram á tónleikum og leikið á Píanó og harmoníum – stundum saman. Árið 1898 fékk Brynjólfur 800 króna styrk frá Alþingi til aðfara utan og læra á orgel. Hann lærði bæði tónfræði og orgelspil, en námstíminn var þó aðeins 10 mánuðir. Árið 1891 stofnaði hann drengjakórinn Vonina en drengirnir voru allir um fermingu. Þeir héldu fyrstu tónleika sína á Hótel Íslandi 30. júní árið 1891 og sungu þá m.a. lagið Nú er glatt í hverjum hól eftir Helga Helgason. Þetta var líklega í fyrsta sinn sem drengjakór kemur saman og syngur á Íslandi.

Fyrir nokkru fann ég bænaskrá Brynjólfs um styrkinn til alþingis en í henni segir:

Jeg undirskrifaður leyfi mjer hjermeð að sækja um, að mjer á næstu fjárlögum verði veittur allt að 1200 kr. styrkur til að ferðast til útlanda og dvelja þar, einkum í Danmörku, allt að 1 árs tíma í því skyni að ná sem mestri fullkomnum í orgelspili og öðrum hljóðfæraslætti svo og til að auðga söngfræðiþekkingu mína svo sem kostur er á.

Eins og hinni heiðruðu fjárlaganefnd mun kunnugt, sótti jeg árið 1893 um styrk til alþingis í sama augnamiði og hjer ræðir um, en beiðni mín fjekk þá eigi áheyrn, þó að eigi munaði nema fáum atkvæðum til þess að fjarveitingin fengi framgang. Um þann 4 ára tíma er síðan er liðinn hef jeg, svo sem föng hafa verið á, og eptir því sem atvinnustörf mín hafa leyft mjer, leitast við að fullkomna mig sem mest í söngfræðilegum iðkunum og hljóðfæraslætti og skal jeg ennfremur geta þess að jeg á þessu tímabili hefi kennt hjerumbil 40 manns er til mín hafa leitað, organslátt og jafnframt veitt þeim tilsögn í söngfræði. En við þessi störf hef jeg sárlega fundið til þess hve miklum annmörkum slík kennsla er bundin fyrir mann, sem ekki hefur átt kost á að afla sjer frekari þekkingar í þessum greinum en hjer á landi er auðið að fá, enda myndi þegar fyrir löngu hafa reynt að brjótast í það að fara utan í ofannefndu augnamiði ef jeg hefði eigi sjeð mjer það allsendis ómögulegt af eigin rammleik fyrir fátæktar og fjeleysis sakir.

Ef mjer hlotnaðist hinn umbeðni styrkur myndi jeg að sjálfsögðu gjöra mjer allt far um og telja helga skyldu mína að reyna að láta styrkveitingu þessa koma að sem bestum notum. Hef jeg meðal annars hugsað mjer að kynna mjer sem bezt söngfræðikennsluaðferð þá, sem nú tíðkast í barna- og alþýðuskólum í Danmörku til þess, eptir á, að geta útbreytt þekkingu þessa hjer á landi. Jeg treysti því að hin heiðraða fjárlaganefnd líti svo á, að hjer sje eigi um allsendis óþarfa fjárveitingu að ræða og hvað sönglega hæfileka sjáfs mín snertir vona þá að jeg eigi verði skoðaður með öllu óhæfur til að verða einhvers styrks aðnjótandi í þessu efni, úr því að jeg því miður eigi get af eigin rammelik aflað mjer þeirrar þekkingar í tjeðum greinum,er jeg hef svo sterka löngun til og sem kostur væri á ef jeg hefði til umráða fje það, sem að fram er sótt um.

Ég leyfi mjer að látabænaskrá þessari fylgja vottorð þau, er fylgja beiðni minni 1893, sem að framan er minnst á, en jeg hugði það eigi nauðsynlegt að útvega mjer ný vottorð eða meðmæli, enda gjöri jeg ráð fyrir að sumum hinna heiðruðu fjárlaganefndarmönnum muni það kunnugt að jeg hef um þann tíma sem liðinn er síðan vottorðin eru gefin, talsvert fengist við list þá, sem að ofan ræðir um, eins og framan er á vikið.

Reykjavík, 20. júlí 1897

Lotningarfyllst,

Brynjólfur Þorláksson.

Bænaskrá þessi sýnir hve örðugt það var á þessum tíma að mennta sig í tónlist. Vottorðin sem fylgdu umsókninni voru afhent Brynjólfi 5. nóvember 1898 af Jónasi Jónssyni þingverði og veit ég ekki hvað þau geta verið niður komin, ef þau eru þá til lengur. Í gerðabók Alþingins frá árinu 1893 kemur eftirfarandi fram:

Hér vantar í samkvæmt dagbókinni no. 201: Bænaskrá frá Brynjólfi Þorlákssyni um 1000 kr. styrk til að fullkomna sig í orgelspili o.fl.

Af þessum ástæðum er ekki hægt að rekja þá umsókn hér og nú. En Alþingi veitti Bryjólfi styrk í seinna skiptið upp á 800 krónur og dvaldist hann í Danjörku í 10 mánuði fyrir þá aura. Það átti líka eftir að koma sér vel. Veturinn 1898-1899 dvarldi hann, eins og áður sagði, í Kaupmannahöfn og lærði orgelleik hjá Johann H. Nebelong, organsita við St. Jóhannesarkirkjuna og tónfærði á P. Rasmussen orgelleikara við Garnisonkirkjna. Við árslokin 1900 tók hann svo við söngkennslunni í Menntaskólanum af Steingrími Johnsen, og við andlát Jónasar Helgasonar tók hann við orgelstörfum í Dómkirkjunni.

Brynjólfur átti síðan eftir að vera einn af aðalmönnum í sönglífinu, hélt m.a. tónleika ásamt Sigfúsi Einarssyni árið 1903.

Árið 1902 stofnaði hann karlakórinn Kátir Piltar og voru í þeim kór bestu fáanlegu söngmenn þess tíma. Þessi kór starfaði um tíma og varð geysi vinsæll. Kórinn söng einmitt við konungskomuna árið 1907 á Þingvöllum og það var Brynjólfur sem æfði og stjórnaði konungskantötunni eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson fyrir stóran blandaðan kór. Hún var flutt í Alþingishúsinu.

Eins og ég sagði þá tók Brynjólfur við dómorganistastarfinu eftir Jónas. Hann sagði svo frá í viðtalsgrein í tímaritinu Tónlistin árið 1945:

Við lát Jónasar Helgasonar varð ég organisti við Dómkirkjuna og gegndi því starfi í tíu ár. Lagði ég ríkasta áherzlu á að fá gott hljóðfall í kirkjusönginn og hafði æfingar á hverju laugardagskvöldi. Stofnsetti ég reglulegan kirkjukór til þess að halda hljómleika, og var ágóða af þeim söngkvöldum varið til þess að greiða fólkinu fyrir kirkjusönginn. Áður hafði fólkið enga þóknun fengið. Gat ég nú borgað hverjum manni fimm krónur á mánuði gegn skuldbindingu um að mæta á öllum æfingum. Eftir þetta tók söfnuðurinn að sér allan kostnað við sönginn. Var þar með í fyrsta sinn komið föstu skipulagi á kirkjusönginn, sem áður hafði verið tilviljunarkennd sjálfboðavinna.

Ennfremur segir hann:

Um áramót 1913 lét ég af forsöngvarastarfinu og hélt þá að hausti til Vesturheims. Þar mættu mér ný verkefni. Ferðaðist ég um Kanada og Dakota, á vegum Þjóðræknifélagsins, kenndi unglingum kórsöng og annaðist safnaðarsöng. Var þetta starf eftir annarra umsöng talið fjöregg íslenskrar samheldni og þjóðrækni vestan hafs. Aukastarf mitt var hljóðfærastilling, sem ég síðan hef stundað. Í íslendingabyggðum hafði ég með höndum barnakóra, blandaða kóra, kvennakóra og karlakóra. Þar kynntist ég Björgvini Guðmundssyni tónskáldi og tók við stórum karlakór í Winnipeg sem hann hafði stofnað. Stóð sönglíf Vestur-íslendinga í miklum blóma, og var hljóðfæraleikur mjög útbreiddur. Var dvöl mín þar vestra hin ánægjulegasta.

Við heyrum Liljukórinn, undir stjórn Jóns Ásgeirssonar flytja lagið Þar fossinn eftir Jónas Helgason við ljóð Steingrims Thorsteinssonar. Hljóðritunun er frá árinu 1962.

Brynjólfur fluttist svo heim aftur árið 1933 og kenndi í barnaskólum. Brynjólfur var mikill áhugamaður um dulræn efni og var hann mikill kunningi Indriða miðils. Einhversstaðar las ég að bókin Indriði Miðill sem Þórbergur Þórðarson færði í letur sé endurminningar Brynjólfs en hún var gefin út árið 1942. Brynjólfur lést 16. febrúar 1950.

Til þess að bregða aðeins mynd að þessari söngstemmingu langar mig aðeins að vitna í vital við líklega einn af mestu kórsöngsmönnum á fyrsta hluta aldarinnar, Gísla Guðmundsson bókbindara. Hann söng m.a. í dómkirkjukórnum hjá Brynjólfi.

Í gerðabókum Dómkirkjunnar rakst ég á ástæðuna fyrir því að Gísli hætti í kórnum. Hann sagðist nefnilega vera svo mikill söngmaður að hann syngi á við tvo og ætti að fá greitt sem tveir menn. Þessu var náttúrlega hafnað.

Í viðtalinu segir Gísli:

Söngfélögin, sem ég hefi starfað í, eru orðin allmörg. Mikil var vinnan og fyrirhöfn við allar æfingarnar. Þetta er samanlagt orðinn langur tími í fimmtíu og fimm ár. Þrettán fyrstu árin söng ég kauplaust í kirkjukórum. Svo var kaupið tólf krónur á mánuði. Seinna bað ég um þriggja krónu kauphækkun en fékk ekki. Þá hætti ég um tíma, en byrjaði aftur. Brynjólfur Þorláksson var söngstjóri á sögulegasta konsertinum sem ég man eftir. Hann var alltaf mikill smekkmaður og lista-stjórnandi. Við voru alls sextán, sem sungum þar saman í karlakór og höfum viskí bak við tjöldin til að mýkja okkur. Þetta var rétt um lokin. Öll skipin voru inni, mikið af norskum og færeyskum skipum. Við sungum m.a. sjömanden og fengum dynjandi lófaklapp. Þegar söngurinn var úti, marséruðum við niður í gegnum Bryggjuhúsið og sungum Sjömanden út yfir höfnina, en sjómennirnir úti á skipunum klöppuðu og hrópuðu af fögnuðu. þar var líf og fjör. Þá var bærinn eins og eitt heimili.

Einhvernvegin ríkir draumkennt yfirbragð yfir frásögnum þessara manna, en þetta hefur áreiðanlega verið slíkur tími því tónlistarlífið var að vakna og þörfin fyrir þáttöku í söng og gleðin síst minni þá en nú, þó svo á annan hátt hafi verið.

Við skulum ljúka þessum þætti á að heyra Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar. syngja nokkur lög sem fylgdu þjóðinni stóran hluta seinustu aldar og eiga áreiðanlega eftir að gera það inn í næstu öld.
Við heyrðum kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar flyja nokkur íslensk lög.

Þættinum er lokið í dag.

Verið þið sæl.