Jóhann G. Jóhannsson og hljómsveit Björns Thoroddsen.
Á Jass- og blúshátíð Kópavogs í júní 2010 kom Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður og tónskáld fram í Salnum með hljómsveit Björns Thoroddsens. Gestur tónleikanna var Dagur Sigurðsson, ungur og vaxandi söngvari. Hér getur að heyra nokkur þeirra laga sem Jóhann samdi og/eða flutti svo eftirminnilega á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Lögin birsta ekki í sömu röð og þau voru flutt á tónleikunum.