Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Upptökur

Verðlagseftirlitið – stimpill

„Verðlagseftirlitið“ – Stimpill frá Þosteini Hannessyni (1917-1999) „… best geymdur í Tónlistarsafni Íslands“ Þorsteinn Hannesson, söngvari og útvarpsmaður (1917-1999), vann sem ungur maður í stofnun með þessu nafni. Þorsteinn og Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður voru góðir vinir og gaf hann Sigurði stimpil með þessu nafni. Sigurði fannst gripurinn best geymdur í Tónlistarsafni Íslands.

Lesa meira : Verðlagseftirlitið – stimpill

Fyrsta fiðla Þórarins Guðmundssonar

Fyrsta fiðla Þórarins Guðmundssonar (1896-1979) Mögulega komin úr dánarbúi Jónasar Helgasonar (1839-1903) Sigurður G. Tómasson færði Tónlistarsafni til varðveislu fyrstu fiðluna sem Þórarinn Guðmundsson lærði á. Sigurður rekur sögu hljóðfærisins og færir rök fyrir þeirri skoðun sinni að fiðlan sé sú sem Jónasi Helgasyni var gefið þegar hann hætti að stjórna Söngfélaginu Hörpu 1887.

Lesa meira : Fyrsta fiðla Þórarins Guðmundssonar

Johann Strauss kom í heimsókn

Í síðustu viku var fjörið í Tónlistarsafni Íslands! 625 börn og kennarar heimsóttu safnið frá 20 leik- og grunnskólum í Kópavogi, Reykjavík, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Hafnarfirði. Pamela De Sensi setti saman um 30 mínútna dagskrá sem valsakóngurinn Jóhann Strauss yngir stjórnaði (túlkaður af Sigurþóri Heimissyni leikara). Þetta er þriðja dagskráin með þessu sniði sem Pamela…

Lesa meira : Johann Strauss kom í heimsókn

Verdi í Tónlistarsafni

Verdi og ítalska óperan í Tónlistarsafni Töfrahorn í Tónlistarsafni sem Pamela De Sensi á hugmyndina að hefur slegið í gegn svo um munar ! Í nóvember sl. tók Mozart á móti 440 leik- og grunnskólabörnum. Nú í vikunni (16. og 17. janúar) komu svo 360 börn að læra um Verdi og ítalska óperu hjá Gissuri…

Lesa meira : Verdi í Tónlistarsafni

Spjaldskrá Tónlistarsögu Íslands

Eitt af verkefnum Tónlistarsafns Íslands er að tölvuskrá um 16.000 spjöld frá Tónlistarsögu Íslands. Spjöldin vísa á allar tónlistarumfjallanir íslenskra dagblaða – frá upphafi ! Hugmyndin er að gera skráningin verði síðar öllum aðgengilega á Netinu. Skráning 10.000 var framkvæmd föstudaginn 16. desember.

Lesa meira : Spjaldskrá Tónlistarsögu Íslands

Þrjú nótnahefti Einars Markan

Birkir Örvarsson færði safninu að gjöf 3 nótnahefti með músík Einars Markan. Nótnaheftin koma úr búi Sigurðar F. Ólafssonar, framkvæmdastjóra Fálkans og síðar forstjóra, og konu hans Svanlaugar Vilhjálmsdóttur. Þau hjón bjuggu í Reykjavík og voru lang-afi og amma Birkis.

Lesa meira : Þrjú nótnahefti Einars Markan