Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Nokkur íslensk sönglög

Þátturinn var á dagskrá Rásar 1, 11. apríl 2000


Góðir hlustendur!
Velkomnir á tónaslóð.

Það má með nokkurri vissu segja að á 20. öldinni hafi íslenskt tónlistarlífið á Íslandi í takt við að sem var að gerast í hinum vestræna heimi, fæðst, vaxið og orðið fullorðið. Um aldamótin 1900 þagnaði hinn gamli þjóðlegi söngur að mestu. Hér voru sungi erlend lög við texta, annaðhvort frumorta eða þýdda, íslenskra skálda og nokkur lög eftir þá bræður Jónas og Helga Helgasyni voru orðin þekkt með þjóðinni. En einnig voru nokkur lög eftir þá Jón Laxdal og Árna Thorsteinsson orðin kunn þó þau væri ekki komin út á prenti.

En stax upp úr aldamótunum urðu straumhvörf í útgáfu sönglaga eftir íslensk tónskáld og fóru þau sem eldur í sinu um allt landið. Lögum þeirra fór ört fjölgandi á fyrsta áratugnum og svo kom Söngvasafnið út á árunum 1915 og 16 og innihélt það um 300 lög, hvar af 75 voru eftir íslensk tónskáld auk 7 íslenskra þjóðlaga. Þetta voru miklar breytingar. Þjóðin tók þessum lögum mjög vel og sýnir það besta að þau eru mörg hver sungin enn í dag. Það sem vekur athygli í þessu sambandi, að í sumum tilfellum hafnaði þjóðin erlendu lagi við íslenskan texta ef gott íslenskt lag kom við þann sama texta. Við skulum taka dæmi. Í söngvasafninu frá 1916 er lagið, Ég reið um sumaraftan við ljóð Steingríms Thorsteinssonar birt undir lagi eftir F. Abt. Þetta lag þekkja nú allir undir heitinu Svnasöngur á heiði en það lagið virðist hafa tekið heiti sitt með þjóðinni eftir lokahendingu ljóðsins: Því ljúfan heyrði’eg svanasöng á heiði. Lagið eftir Abt. hefði ekki birst í söngvasafninu nema af því að það var þekkt. Ég fann ekki hljóðritun af einmitt þessu lagi í safni útvarpsins en til þess að rifja það upp valdi ég að glamra það á píanó svo menn geti rifjða upp þessa laglínu, sem aldrei heyrist nú:

Þetta var lagið eftir Abt sem fyrst var sungið við ljóð Steingríms Thorsteinssonar, Ég reið um sumaraftan. En minnumst nú orða Helga Helgasonar þegar hann sagði: Við eigum ekki að setja útlend lög við íslenzk kvæði. Við eigum að semja lögin sjálfir. Hann var sjálfur sér samkvæmur hvað þetta varðaði. Hann heilsaði nýrri öld 31. desmember árið 1900 með svofelldu ávarpi: Kæru landar! Ég flyt yður þetta lag, með þeirri ósk, að þér hafið það yfir, þegar þér minnist á Ísland. Þvínæst finnum við lag hans við ljóð Jónasar prentað: Þið þekkið fold með blíðri brá.

Sem dæmi um þessi orð Helga, að við ættum sjálfir að semja lögin sjálfir, þá skulum við taka einmitt þetta ljóð Steingríms og heyra lag Sigvalda: Ég reið um sumaraftan eða eins og við þekkjum það: Svanasöngur á heiði.

Við heyrðum Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Páls P. Pálssonar syngja lagið Svanasöngur á heið eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Steingríms Thorsteinssonar.

Nú annað dæmi um íslensk sönglög sem rutt hafa erlendum lögum við sama texta úr vegi er Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn. Það var fyrst sungið hér við finnskt þjóðlag, en í dag heyrst þessi texti aðeins undir lögum Sigfúsar Einarssonar og Sigvalda Kaldalóns og allir þekkja. Nú til enn frekari ítrekunar á þessu atriði má minnast á lag Björgvins Guðmundssonar við texta Gríms Thomsens, Heyrið vella á heiðum hveri, Heyrið álftir syngja’ í veri; íslands er það lag, Íslands er það lag.

Þetta ljóð birtist í íslensku söngvasafni við lag eftir Frederik Pacius, þýskfæddur en er í bókum talinn finnskt tónskáld vegna langrar dvalar hans þar í landi. Ég hef heldur ekki fundið hljóðritun af þessu erlenda lagi og því skulum við, áður en við heyrum lag Björgvins, sem nú er þekkt undir heitinu íslands lag, heyra finnska lagið á píanó.

Við heyrðum lag Björgvins Guðmundssonar, Íslands lag við ljóð Gríms Thomsens í flutningi Langholtskórsins.

En hverjir voru að semja lög á þessum tíma? Við skulum nú rifja upp nokkur nöfn og um leið heyra einstök lög. Íslenska þjóðin hafði fengið að kynnast lofsöng Sveinbjörns Sveinbjörnssonar sem síðar varð þjóðsöngur íslendinga. En strax upp úr aldamótum fór hún einnig að kynnast sönglögum hans við íslenska texta.

Við skulum fyrst heyra lagið Sverrir konungur í flutningi Sigurðar Skagfield í hljóðritun frá árinu 1925.

Við heyrðum Sigurð Skagfield syngja lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar við ljóð Gríms Thomsens – Sverrir konungur – í hljóðritun frá árinu 1925.

Árið 1924 barst lag Sveinbjörns, Sprettur hingað til lands en það var prentað í Edinborg sama ár. Um þetta lag segir Hallgrímur Helgason í bók sinni : Tónmenntasaga Íslands, á einum stað: Aldrei áður hafði í íslenzkri söngvagerð heyrst annar eins fjörtaksins hófadynur, eins og í þessu einsöngslagi. Hestur, maður og landslag voru orðin ein heild. Gæðingur fer á kostum með knapann í fang náttúrunnar. Það er flug í allri framsetningu.

Við heyrðum Sigurð Skagfield syngja lagið Sprettur eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson við ljóð Hannesar hafstein. Það var eins og í fyrra laginu, tónskáldið, Sveinbjörn Sveinbjörnsson sem lék á píanóið í hljóðritun frá árinu 1925. Nær komumust við ekki þessu lagi í tíma.

Við skulum vitna frekar í bók Hallgríms Helgasonar:

Frá því segir Ásta Einarsson, á sínum tíma ein eftirsóttasti píanókennari í Reykjavík, bróðurdóttir Sveinbjörns, að hún hafi um síðustu aldamót heimsótt frænda sinn í Edinborg og sýnt honum kvæði Hannesar, því að hanni hafi þá lítið kynnst yngri íslenzkum skáldum og ljóðum þeirra. Þessum kvæðum tók Sveinbjörn fegins hendi. Mun hann þá fljótlega hafa lagsett Valagilsá, þótt ekki yrði það prentað fyrr en 1932. Lagið mun þó fyrr hafa borizt í afriti hingað. Þess eru jafnvel dæmi, að ungir menn utan af landi lærðu lagið utanað við skólanám í Reykjavík og sungu það, er heim kom í sumarfrí og sumarvinnu. Slíkt var mikill viðburður og olli almennum fögnuði og aðdáun, enda voru lög Sveinbjörns meðal þeirra fyrstu, sem Íslendingar eignuðust með sjálfstæðum undirleik.

tilvitnun lýkur

Við heyrðum Bjarna Thor Kristinsson syngja lagið Við Valagilsá eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson við ljóð Hannesar Hafstein. Það var Jónas Ingimundarson sem lék á píanóið.

Árið 1932 gaf samband íslenskra karlakóra út 12 lög Sveinbjörns fyrir karlakór. Við skulum nú heyra nokkur lög Sveinbjörns flutt af Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Páls P. Pálssonar. Það eru lögin Minni Ingólfs, eða Lýsti sól við ljóð Matthíasar Jochumssonar, Á sprengisandi við ljóð Grims Thomsen, Fífilbrekka við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, og Sprettur við ljóð Hannesar Hafstein. það er Jan Moravec sem útsetti það lag fyrir karlakór og Guðrún Þorsteinsdóttir leikur á píanóið.

Við heyrðum Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Páls P Pálssonar flytja nokkur lög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson.

Í dag er varla gefinn út sá hljómdiskur með söng að á honum finnist ekki lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Sigvaldi gaf út hefti með sjö einsöngslögum árið 1916 og annað með þremur einsöngslögum árið 1917 og enn eitt hefti með 10 lögum árið 1918. Það voru einmitt þessi sönglagahefti sem gerðu Sigvalda kunnan með þjóðinni. Heildarútgáfa af lögum Sigvalda kom svo út árið 1940. Við skulum hér í lokin heyra Kaldalónskviðu sem er syrpa af 9 lögum Sigvalda í útsetningu Páls Kr. Pálssonar. Það er Lögreglukórinn í Reykjavík sem syngur. Ekki er tekið fram í skýrslu með þessari hljóðritun hver leikur á píanóið en hljóðritunun er frá árinu 1962.

Við heyrðum Lögreglukórinn í Reykjavík syngja syrpu af lögum eftir Sigvalda Kaldalóns í útsetningu og undir stjórn Páls Kr. Pálssonar

Við heyrum fleiri íslensk sönglög í næsta þætti.

Verið þið sæl.