Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Pétur Guðjohnsen

Þessi texti er upphaflega skrifaður sem handit að útvarpsþætti sem var á dagskrá Ríkisúvarpsins, Rás 1, 25. janúar 2000


Við höfum í seinustu þáttum hlýtt m.a. á tvær smásögur sem báðar hétu Orgelið. Í þeim kom fram sá andi er er oft ríkti meðal fólks í þjóðfélaginu á 19. öld – einkum til sveita. Einnig kom fram hve alvarlegum augum sumir litu þá breytingu sem varð er orgel komu í kirkjur landsins og forsöngvaraembættin hurfu smám saman. Þá kom einnig fram uppgjörið mikla, er framfarasinnaðir menn, sem sumir vilja kalla, fóru að syngja nýju lögin á kostnað hinna svokölluðu gömlu sálmalaga sem sungin höfðu verið í íslenskum kirkjum í yfir 200 hundruð ár.

En hvílum nú þessar vangaveltur og hlýðum á tónlist. Það sem við fáum að heyra er verk sem samið var í minningu eins helsta tónlistarfrömuðar 19. aldar, Pétur Guðjónssonar. Verkið var samið í tilefni þess að 100 ár voru liðn frá fæðingu hans, af Sigfúsi Einarssyni tónskáldi og var það frumflutt í Dómkirkjunni í Reykjavík árið 1912. Ljóðið er eftir Guðmund Guðmundsson. Við skulum heyra verkið flutt af Dómkirkjukórnum undirstjórn Páls Ísólfssonar en það er Þuríður Pálsdóttir sem syngur einsöng. Hljóðritunin er frá árinu 1962.

Við heyrðum dómkirkjukórinn og Þuríði Pálsdóttur undir stjórn Páls Ísólfssonar flytja verkið Pétur Guðjohnsen eftir Sigfús Einarsson.

Þegar maður hugsar um 19. öldina í tónlistarlegum skilningi þá kemur sjálfkrafa eitt nafn upp í huga manns – einmitt nafn Péturs Guðjohnssonar. Hann fæddist á Hrafnagili í Eyjafirði 29. nóvember árið 1912. Um það leyti var þjóðin að vakna til meðvitundar um nýja tónlist og átti Pétur einmitt eftir að vera mikill frumkvöðull þess að kynna þjóðinni ný lög og færa tónlist hennar fram um, allavega eitt skref, í átt til samtímans. Er hér átt við sungin lög því engir, eða fáir, voru hljóðfæraleikararnir. Pétur Guðjónsson var fyrsti íslendingurinn sem kynnti almenningi það sem við getum kallað nýja tónlist, bæði með kennslu sinni, sem organleikari dómkirkjunnar og með útgáfu sálmabóka sinna. Pétur Guðjónsson var fyrsti organistinn á Íslandi, hann var jafnfram fyrsti söngkennarinn við Latinuskólann, hann gaf út fyrstu fjölradda sálmasöngsbókina á Íslandi og jafnframt gaf hann út fyrstu almennu tónfræðibókina.

Ekki eru allir sammmála um Pétur Guðjónsson og, á mörgum sviðum, ágætt starf hans hér að tónlistarmálum á 19. öldinni. Sumir, bæði fræði- og kirkjunnar menn í dag líta á hann sem helsta skaðvald íslenskrar tónlistarsögu og eiga þeir þá við að hann hafi unnið ötullega að því að hafna hinum gömlu þjóð- og sálmalögum og viljað innleiða í staðinn ný lög við sálmana. Við skulum aðeins líta á stuttan kafla úr ævisögu hans þar sem viðhorf hans til gömlu sálmana kemur fram:

Þegar hann fór til Kaupmannahafnar, opnaðist fyrir honum nýr heimur eigi aðeins fyrir augum hans, heldur og fyrir eyrum hans. Hin inndæla sönglist birtist honum nú í allri sinni fegurð og gagntók svo huga hans, að hann gekk þegar fagnandi undir merki hennar og varð hinn ótrauðasti liðsmaður hennar alla æfi síðan. En þessi fögnuður senerist brátt að nokkru leyti í harm og gremju, er hann hugsaði til þess, að enginn hafði enn reynt til, að flytja þessa fögru list heim til ættjarðar hans, svo að hún hafði algjörlega farið á mis við hana og þar með allan þann fögnuð er hún veitir, þegar hún kemur fram í sinni réttu mynd. hann hugsaði til kirkjusöngsins hjá oss, eins og hann var þá og rann til rifja hversu afskræmdur og vanskapaður hann var og hversu illa hann samsvarði hinum hátíðlega tilgangi sínum. Hann hugsaði til skemtisöngva vorra og minntist þess, að þeir vor hér næsta fáir, að eins nokkur tvísöngslög, einstök alþýðulög, meira og minna ófullkomin og svo hin fátæklegu rímnalög, sem alment voru í mjög miklu afhaldi há alþýðu. Þetta aumlega ástand fósturjarðarinna fékk svo mjög á hinn viðkvæma og tilfinningarnæma mann, að hann hét því að gera allt, sem í sínu valdi stæði, til að bæta úr því, og þetta heit efndi hann trúlega.

Haft hefur verið eftir honum að Sálmalögin séu orðin að skrímslum sem spilli öllum smekk fyrir því sem fagurt sé. Að ísland sé 500 árum á eftir tímanum miðað við Ítaíu þannig að mikið heljarstökk verði að taka framávið til þessa að minnka söngmenningarlegt samanburðarbil við menntaðar þjóðir. Hér verði að opna útsýn til Evrópu um fagra list sem fáir þekki.

Árið 1850 kom út á Akureyrir bók Ara Sæmundssonar, Leiðarvísir til að leika á langspil. Eins og fram kemur á titilsíðu bókarinnar þar sem stendur:

+

Íslands ágætasta og langmesta söngfræðingi, herra organista, Pétri Guðjohnsen tileinkast þessi litli ritlingur, virðingarfyllst af höfundinum.

Þessi tileinkun vísar til þess hve mikillar virðingar Pétur naut á þessum tíma. En þó má ætla, að tilraunir Ara til að endurreisa langspilið hafi mátt sín litils í viðhorfum og humyndum Péturs til framfara á Íslandi í tónlistarmálum. Má efast um að hann hafi gert ráð fyrir langspilinu í þeim framfarahugmyndum; eina hljóðfærinu sem á þeim tíma gat talist eign almennings, enda átti þetta hljóðfæri síðar eftir að vera mörgum hjálparhella í því að læra lögin úr einradda sálmabók Péturs. Pétur hafði lítið álit á langspilinu og sagði langspil eyðilegði heyrnina hjá blessuðu fólkinu – þá á hann við tónheyrnina. Á hann þá við að eins og leikið væri á það, passaði ekki inn í þá heyrnarlegu hundahreinsun, gæti einhver kallað það, sem hann hafði gengið í gegnum í tónlsitarnámi sínu í Jonstrup í Danmörku, en hann tileinkaði sér gagnrýnislaust þann söng og þá tónlist sem hann lærði hjá dönum. Var þar fyrirmynd hans hinn þekkti þjóðlagasafnari og tónskáld . Bergreen. Bergreen hafði gefið út hefti með sönglögum til notkunar í skólum og voru þau helsta biblía Péturs við skólakennsluna hér á landi. Má ætla að kennsla hans í um þrjátíu ár hafi sett varanleg spor sín hjá þjóðinni þar sem nemendur hans dreifðust vítt og breitt um landið að námi loknu og tóku þá að sjálfsögðu með sér þessi nýju lög, og kenndu öðrum.

En Pétur kenndi ekki aðeins lærisveinum sínum söng í Latínuskólanum, heldur æfði hann þar kór sem hélt hinn fyrsta samsöngs hér á landi í skólahúsinu, 2. apríl 1854. Þótti það þá undur og stórmerki að tekist hafði að æfa fjórradda lag.

Pétur sinnti ekki aðeins söngkennslu. Hann hafði farið til Kaupmannahafnar árið 1937 til náms. Ástæða þess er að Reykvíkingar höfðu stofnað barnaskóla árið 1830. Er kennari skólans, Ólafur Einarsson, Hjaltested var veittur Saurbær á Hvalfjarðarströnd og hann vígðist þangað árið 1837 var kennaralaust í skólanum. Ákváðu þá Reykvíkingar að kosta Pétur út til náms í þrjú ár gegn því skilyrði að hann tæki að sér kennslu í barnaskólanum að námi loknu. Pétur lauk svo námi árið 1840 og sigldi heim. Við skulum vitna að nýju í ævisögu hans:

Þau ár sem Pétur var á kennaraskólanum í Jonstrup, lærði hann meðal annars söng og organslátt; en sakir þess, hve margt hann hafði þar annað að stunda gat hann eigi stundað þessar greinar eins og hann óskaði, og fékk eigi aflað sér jafnmikillar þekkingar á sönglistinni yfir höfuð eins og hann vildi; gaf hann sig því sér í lagi við sálmasönginum, sem hann einkum hafði í huga að bæta á fósturjörð sinni. Hið fyrsta sem hann gjörði í þessa stefnu mun hafa verið það, að hvetja Reykvíkinga til það kaupa organ í dómkirkjuna, þá er hann kendi sig mann til að nota það við guðsþjónustugjörðina, og tóku þeir svo vel undir þær tillögur hans; var nú kveðið svo á, að kaupa skyldi organið og það koma til landsins jafnskjótt og Pétur hefði lokið námí sínu og hann síðan annast allan söng í dómkirkjunni. Hann úrskrifaðist úr skólanum í Jonstrup 26. apríl 1840 með góðum vitnisburði og sigldi þá þegar heim til íslands og kom til Reykjavíkur 20. maí sama ár. Organið kom og samsumar til Reykjavíkur, og tók hann þá þegar við organleikarastörfum og gegndi þeim til dauðadags.

Þetta orgel er hið fyrsta, sem við getum kalla, naglfasta, orgel á Íslandi. Pétur varð síðan organisti dómkirkjunnar og starf hans að þeim málum saga útaf fyrir sig.

Sá boðskapur sem við heyrðum í sögunum í seinustu þáttum tengist því sem kalla mætti Viðreisnartímibili íslenskrar tónlistarsögu sem segja má í grófum dráttum að nái frá árinu 1840 og fram til aldamóta 1900. Á þeim tíma komu smám saman ný lög, aðallega dönsk til landsins og verður ekki sagt annað en að þjóðin hafi tekið þessum lögum fegins hendi. Hér var eitthvað nýtt á ferðinni, eitthvað ferskara; jafnvel skemmilegra, og svo voru textarnir líka eitthvað annað en eilífur, oft illa ortur, lofgjörðarsöngur til drottins. Helst má segja að áhrifin komi frá Danmörku. Þó svo eitt og eitt lag hafi slæðst inn á fyrstu 20 árum þessa tímabils, þá brutust áhrifin fyrst af alvöru fram við útkomu einradda sálmabókar Pétur Guðjónssonar, eða Guðjohnssens ef menn vilja kalla hann svo, árið 1861. Bók þessi er einrödduð sálmasöngsbók með 110 lögum svo og tóni prestanna og safnaðarsvörum. Hann tileinkaði lærisveinum sínum þessa bók, en einkum þó og sér í lagi Andreas Peter Bergreen, hinu kunna tónskáldi dana, bókina, en Pétur og Bergreen voru miklir mátar. Hafa lög Bergreen jafnan skipað veglegan sess í íslenskum kóralbókum æ síðan , svo veglegan að sumum hefur þótt nóg um. En því verður ekki breytt að mörg lög Bergreen hafa sungist inn í þjóðina á þessum tima.

Við heyrðum Elisabeth Meyer-Topsöe syngja sálminn Her vil ties, her vil bies eftir Bergren við sálm Brorsons Það var Hans Norbert Bihlmaier sem lék á orgelið. Þetta lag Bergreen er jú sungið hér á landið við sálminn Enn í trausti elsku þinnar.

En Íslendingar létu ekki hér staðar numið við dönsku tónskáldin, því hér hafa gjarnan verði sungnir sálmar og alþýðukvæði við lög Weyses, Harmanns, Gade, Rung og fleiri.

Við heyrðum lögin, Hvað er svo glatt og Nú líður kvöld í útsetningur Þorkels Sigurbjörnssonar og í flutning Sinfóníuhljómveitar Íslands, en þessi lög voru hljóðrituð árið 1968.

Verður því ekki annað sagt en að grundvöllur sá er Pétur lagði með útgáfu einradda sálmabókar sinnar og svo þeirri með þremur röddum sem kom út árið 1878 hafi sett sin spor hjá þjóðinni. Nú einnig má nefna að fyrstu alvarlegu skrefin til að uppfræða þjóðina um þaðsem kallað var söngfræði var einmitt útgáfa Péturs á Leiðarvísi til þekkingar á sönglistinni árið 1870, en það var bók sem að miklu leyti var þýdd úr dönsku.

Nú, ef við tölum um veraldlegan söng á þessum tímabili frá 1840 til aldamóta 1900 þá voru það einmitt organistar dómkirkjunnar, Pétur Guðjónsson og Jónas Helgason sem innleiddu erlend lög sem sungin voru við veraldlega texta. Pétur var fyrstur með kennslu sinni í Latínuskólanum en þar kenndi hann nemendum lögin úr heftum Bergreens, Sange til skolebrug og síðar Jónas Helgason en hann gaf út á árið 1875 hefti sem kallað var Hörpuheftið og síðar nokkur sönglagahefti á árunum 1879 – 1901 – kölluð Jónasarheftin. Lögin sem þeir félagar innleiddu komu aðallega frá norðurlöndum og þýskalandi. Hér ber að minnast á Steingrim Thorsteinsson en hann þýddi fjölda texta eða frumorti við þýsk sönglög og eru áhrif hans mikil í þessu sambandi.

Við heyrðum kór Langholtskirkju syngja Frjálst er í fjallasal, lagið eftir Kuhlau við texta Steingrims Thorsteinsson.

Mörg þeirra laga sem birtust fyrst í Jónasarheftunum voru síðar tekin up í íslenskt söngvasafn sem kom út á árunum 1915 og 16 og voru þar með innsigluð sem alþýðulög með þjóðinni. En þó svo íslensku lögin hafi verið fá í þessum fyrstu útgáfum sönglaga á Íslandi átti hlutfall íslenskra sönglaga eftir að breytast upp úr aldamótum þegar heimamenn fóru að semja lög svo um munaði, lög sem mörg hver eru á annarri hverri geisladiskaútgáfu íslenskra söngvara enn í dag. Það vekur athygli í þessu sambandi að hin dönsku áhrif eru nánast eingöngu bundin við sönglög samin þar á 19. öld. Dönsk lög samin á 20. öld hafa lítið verið sungin hér, nema þá kannski eftir Kim Larsen.

Við sklum nú heyra nokkur lög úr íslensku sönvasafni. Ekki er öll lögin sem heyrum eftir dönsk tónskáld, en gefa gott sýnishorn af þeim lögum sem þjóðin söng sér til skemmtunar langt fram eftir 20. öldinn og syngja sum enn.

Við heyrðum kór Langholtskirkju syngja nokkur lög úr íslensku söngvasafni undir stjórn Jóns Stefánssonar.

Í dag heyrir maður gjarnan fræðimenn og suma kirkjunnar menn tala um þá framfarasinnuðu á 19. öldinni sem hinn mesta eyðileggingarmátt íslenskrar tónlistarsögu á eftir katólsku bókabrennunum. Það var fyrir framkvæmdasemi þessara manna sem mörg hinna gömlu laga hurfu á vit gleymskunnar og flutningsháttur laganna gleymdist að mestu. Ekki er ætlunin að taka sérstaklega á þessum viðhorfum hér þó það freisti, en það verður að segjast að góð sýnishorn af þeim lögum sem sungin voru, bæði frá katólska tímanaum og einnig eftir siðaskitptin hafa varðveist í handritum og svo í þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinsssonar. Annað sem ekki síður er mikilvægt og hefur varðveist í gömlum hljóðritunum, er flutningshátturinn. Er ég þá ekki aðeins að tala um hljóðritanir Jóns Leifs og Jóns Pálssonar og fleiri í upphafi 20. aldar, heldur hefur fólk frá Árnastofnun svo og einstaklingar haldið áfram að hljóðrita söng gamals fólks langt fram eftir öldinni. Það gildir sönginn sem og annað úr menningu okkar að við verðum að sætta okkur við það sem varðveist hefur og vinna út frá því. Verður nú vart við vaxandi áhuga á þessum fornu heimildum og er unnið að því á ýmsum sviðum að gera þær aðgengilegar almenningi.

Góðir hlustendur!

Þættinum er lokið í dag,

Verið þið sæl.