Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Erlendir kórar

„Stockholms Studentssängarförbund“.  „Sænsk vika“ var haldin hér í borginni í júnímánuði 1936. Meðal þeirra mörgu sænsku gesta, sem heimsóttu land vort í tilefni vikunnar var ofannefndur karlakór, sem hér var kallaður „sænski stúdentakórinn.“ Kórinn vakti mikla hrifningu meðal bæjarbúa, en hann hélt 4 samsöngva í Gamla Bíó, við húsfylli í hvert sinn. Auk Þess sungu Svíarnir í porti Austurbæjarbarnaskólans, fyrir framan Menntaskólann við Lækjargötu og í útvarp. Á Þingvöllum sungu þeir, ásamt Karlakór Reykjavíkur og Karlakór  K. F. U.M.  Söng þar hver kór fyrir sig, en að lokum allir kórarnir saman undir stjórn allra söngstjóranna. Var þann dag mikill mannfjöldi saman kominn á hinum fornhelga stað og hlustuðu menn á söng kóranna í Almannagjá.

„Stockholms Studentssängarforbund“ var snilldarvel þjálfaður kór: Hér var aðeins úrval kórsins á ferðinni, 26 manns. Einar Ralf stjórnaði söngnum. Hann er gæddur óvenjulegum stjórnar hæfileikum, og er ágætt tónskáld. Flest lögin voru sænsk og alkunn hér á landi. Var gaman að heyra „gömlu kunningjana“ svo vel sungna. Einsöngvari kórsins var barítónsöngvarinn Sigurd Björling, hetjurödd. Hann er nú heimsfrægur óperusöngvari. Mun mörgum minnistæð meðferð hans á „Sten Sture “, hinu tilkomumikla kórlagi Augusts Körling.

„Sænska vikan“ setti svip á bæjarlífið og mikið var um útisöng karlakóranna. Við burtför Svíanna frá hafnarbakkanum voru þeir kvaddir með söng (Karlakór K.F.U.M.) og sungu sjálfir óspart, þá er skipið lagði frá landi, en mikill mannfjöldi var þar saman kominn til að hlýða á sönginn og kveðja hinu sænsku gesti. Þannig lauk hinni sænsku viku með söng og gleði.

Söngfélagið Orphei Drängar. Annar merkur söngviðburður er heimsókn stúdentakórsins í Uppsölum, sem í Svíþjóð er venjulega kallaður O.D. (Orphei Drängar). Kórinn dvaldi hér 10-16 júní 1956 og söng í Þjóðleikhúsinu. Þetta er einn frægasti karlakórinn á Norðurlöndum, og einn sá elzti, (stofnaður 1853) og hefur unnið margan söngsigurinn utan Svíþjóðar, allt frá því Uppsalastúdentakórinn vann l. verðlaun í söngkeppni á heimssýningunni í París 1867, og er sú för enn í dag í minnum höfð. Söngur kórsins hér í Reykjavík tilheyrir að vísu næsta tímabili en þó verður hér stuttlega minnst á hann.

Í hvert sinn sem kórinn söng hér í Þjóðleikhúsinu, söng hann fyrst, á undan lögunum á söngskránni, Bellmanskvæðið, sem nafn kórsins er sótt í:
Hör, I Orphei drängar
stämmen edra stränger.
Kórinn stendur á gömlum merg, fastmótaður af aldargömlum sænskum söngvenjum, hljómurinn norrænn og svipurinn sænskur. Í kórnum ríkir hinn akademiski andi og kúltúr. Meiri hluti laganna var sænskur. Tvö íslenzk lög voru sungin: „Ár vas alda“ eftir Þórarinn Jónsson og „Brennið þið vitar“ eftir Pál Ísólfsson.

Söngur sænsku kóranna var til fyrirmyndar og í alla staði sæmandi hinni miklu söngþjóð.

Til baka