Á svipaðan hátt og hjá S.V.G. (Samband veitinga- og gistihúsaeigenda) höfðu kvikmyndahússeigendur stofnað með sér hagsmunafélag sem í fyrstu hafði fallist á drög að samningi við STEF en hafnað síðan. Að lokum fór svo að STEF höfðaði mál á hendur Gamla Bíói um flutningsgjöld af tónlist samkvæmt gjaldskrá sinni. Í dómi þessa máls segir svo m.a.:
Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní s.l. hefur Jón Leifs, tónskáld, Bókhlöðustíg 2 hér í bæ, sem framkvæmdastjóri STEFs, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar hér í bænum, f.h. The Performing Right Society Ltd. í London vegna tónskáldsins Cedric Thorpe Davie’s í Glasgow, höfðað fyrir bæjarþingi Reykjavíkur með stefnu útgefinni 22. desember f.a. gegn stjórnendum Gamla bíós hér í bænum…. (133)
í Dómsorði segir:
Stefndu, stjórnendur Gamla bíós h/f. … greiði f.h. félags stefnanda, Jóni Leifs, framkvæmdastjóra STEFs, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, f.h. the Performing Right Society Ltd. vegna Cedric Thorne Davie’s kr. 125,97 með 6% ársvöxtum frá 11. desember 1950 til greiðsludags. Áðurnefnd stjórn Gamla bíós h/f greiði persónulega, hver fyrir sig 150.00 króna sekt í ríkissjóð, og komi tveggja daga varðhald í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd áður en aðfararfrestur í máli þessu er liðinn. Þá greiði stefndu stjórnendur Gamla bíós h/f fyrir félagsins hönd og persónulega, stefnanda kr. 750.00 í málskostnað (134).
Nú fékk STEF úr því skorið að óheimill væri flutningur verndaðrar tónlistar með kvikmyndum sem seldur verði aðgangur að nema með leyfi (STEFs). Einnig varðaði það refsingu að flytja í heimildarleysi verndaða tónlist í kvikmyndum. Kvikmyndahúsum bæri samkvæmt þessum dómi að greiða tónhöfundum fyrir flutning verndaðrar tónlistar, og ekki var síður mikilvægt að gjaldskrá STEFs skyldi vera til viðmiðunar við gjaldtöku þessa nema um annað yrði samið. Var málið flutt af lögfræðingi félagsins, Gústafi A. Sveinssyni.
Um sama leyti, eða 27. apríl árið 1951, féll dómur í undirrétti; dómur höfðaður af Sigurði Reyni Péturssyni lögfræðingi f.h. Jan Van Loewen vegna dánarbús Stefan Zweigs gegn Leikfélagi Reykjavíkur vegna sýningar á leikritinu Volpone, sem var endursamið eftir leikriti Ben Johnsons. Í stuttu máli var Leikfélag Reykjavíkur dæmt til að greiða STEFi 6% af miðasölunni auk málskostnaðar. Þetta var fyrsti dómurinn um flutningsrétt á Íslandi. Hæstaréttardómur féll í máli kvikmyndahússins seint á árinu 1952 þar sem það var dæmt til að greiða 1 1/4% af miðaverði í höfundarréttargjöld. Niðurstaðan varð sú að samningar tókust við 6 kvikmyndahús í Reykjavík um greiðslu gjalda til STEFs.
Fyrir hönd STEFs var Jón Leifs óþreytandi í að kynna starfsemi félags síns og gæta hagsmuna félagsmanna. Hann leitaði uppi hverja smugu til að koma í veg fyrir misnotkun á höfundarrétti tónskálda og er annað þekktasta dæmið sem varð opinbert mál er tengdist sérleyfisbílum (hitt er svokallað Keflavíkurmál).
133 Endurrit úr dómabók bæjarþings Reykjavíkur
134 Sama.