Fyrsta fiðla Þórarins Guðmundssonar (1896-1979)
Mögulega komin úr dánarbúi Jónasar Helgasonar (1839-1903)
Sigurður G. Tómasson færði Tónlistarsafni til varðveislu fyrstu fiðluna sem Þórarinn Guðmundsson lærði á. Sigurður rekur sögu hljóðfærisins og færir rök fyrir þeirri skoðun sinni að fiðlan sé sú sem Jónasi Helgasyni var gefið þegar hann hætti að stjórna Söngfélaginu Hörpu 1887.