Karlakórinn Þrestir flytur lög Sveinbjörns Sveinbjörnssonar

Tónleikar í Salnum í Kópavogi 9. október 2011

Sunnudaginn 9. október 2011 hélt Karlakórinn Þrestir stórtónleika í Salnum í Kópavogi. Eingsöngvarar voru Garðar Thór Cortes, Valgerður G. Guðnadóttir og Eiríkur Hreinn Helgason. Jón Kristinn Cortez stjórnaði og Krystyna Cortes lék á píanóið. Tónleikarnir voru haldnir í tengslum við sýningu Tónlistarsafns Íslands á verkum, munum, myndum og bréfum úr safni Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, höfundar þjóðsöngsins.

Flutt voru þekkt og minna þekkt lög Sveinbjörns fyrir karlakór og einsöngsraddir en Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands, leiddi tónleikagesti í gegnum helstu æviatriði tónskáldsins.

Með góðfúslegu leyfi flytjenda fékk Tónlistarsafnið að taka tónleikana upp og birtum hér sem lið í kynningu á Sveinbirni og tónlist hans. Lög og kynningar birtast í sömu röð og á tónleikunum.


  1. Ingólfs minni (Opnast í nýjum vafraglugga) – karlakór
  2. Sumarkveðja (Opnast í nýjum vafraglugga) – karlakór
  3. Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (1/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
  4. Fáninn (Opnast í nýjum vafraglugga) – Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
  5. Gröf víkingsson (Opnast í nýjum vafraglugga) – Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
  6. Maíleikur (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes, Eiríkur Hrienn Helgason og Krystyna Cortes
  7. Í maí (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir, Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
  8. Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (2/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
  9. Á ströndu (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir og Krystyna Cortes
  10. Hugsaðu heim (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir og Krystyna Cortes
  11. Roða tindar (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G.Guðnadóttir og Krystyna Cortes
  12. Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (3/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
  13. Blómálfar (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
  14. Miranda (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
  15. Vetrarrósir (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
  16. Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (4/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
  17. Lofsöngur (Opnast í nýjum vafraglugga) – Ó Guð vors lands
Tónlistarsafn Íslands, Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík | Sjá á korti
Sími 525 5754 / 824 6413 | Netfang: ts@tonlistarsafn.is