Tónleikar í Salnum í Kópavogi 9. október 2011
Sunnudaginn 9. október 2011 hélt Karlakórinn Þrestir stórtónleika í Salnum í Kópavogi. Eingsöngvarar voru Garðar Thór Cortes, Valgerður G. Guðnadóttir og Eiríkur Hreinn Helgason. Jón Kristinn Cortez stjórnaði og Krystyna Cortes lék á píanóið. Tónleikarnir voru haldnir í tengslum við sýningu Tónlistarsafns Íslands á verkum, munum, myndum og bréfum úr safni Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, höfundar þjóðsöngsins.
Flutt voru þekkt og minna þekkt lög Sveinbjörns fyrir karlakór og einsöngsraddir en Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands, leiddi tónleikagesti í gegnum helstu æviatriði tónskáldsins.
Með góðfúslegu leyfi flytjenda fékk Tónlistarsafnið að taka tónleikana upp og birtum hér sem lið í kynningu á Sveinbirni og tónlist hans. Lög og kynningar birtast í sömu röð og á tónleikunum.
- Ingólfs minni (Opnast í nýjum vafraglugga) – karlakór
- Sumarkveðja (Opnast í nýjum vafraglugga) – karlakór
- Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (1/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
- Fáninn (Opnast í nýjum vafraglugga) – Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
- Gröf víkingsson (Opnast í nýjum vafraglugga) – Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
- Maíleikur (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes, Eiríkur Hrienn Helgason og Krystyna Cortes
- Í maí (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir, Eiríkur Hreinn Helgason og Krystyna Cortes
- Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (2/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
- Á ströndu (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir og Krystyna Cortes
- Hugsaðu heim (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G. Guðnadóttir og Krystyna Cortes
- Roða tindar (Opnast í nýjum vafraglugga) – Valgerður G.Guðnadóttir og Krystyna Cortes
- Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (3/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
- Blómálfar (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
- Miranda (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
- Vetrarrósir (Opnast í nýjum vafraglugga) – Garðar Thor Cortes og Krystyna Cortes
- Sagt frá Sveinbirni (Opnast í nýjum vafraglugga) (4/4) – Bjarki Sveinbjörnsson
- Lofsöngur (Opnast í nýjum vafraglugga) – Ó Guð vors lands