Þórhallur Árnason 1891-1976

Þórhallur Árnason er fæddur 13. janúar 1891 í Narfakoti í Innri Njarðvík, sonur hjónanna Árna Pálssonar, barnakennara, og Sigríðar Magnúsdóttur, en þau hjónin voru bæði fædd og uppalin í Rangárvallasýslu.

Þórhallur lærði cellóleik hjá Rüdinger prófessor í Kaupmannahöfn og hjá Emil Leichsenring í Hamborg.

Þórhallur hefur haft cellóleikinn að atvinnugrein sinni. Árum saman dvaldi hann erlendis, lengst af í Hamborg, og lék þá í hljómsveitum, bæði í kvikmyndahúsum og á opinberum skemmtistöðum. Hann kom þá stundum fram sem einleikari á félagssamkomum og kirkjutónleikum. Á þessum árum kom hann til Reykjavíkur með vini sínum Otto Stöterau píanóleikara, sem þá var ungur, en varð síðar leiðandi maður í músíklífi Hamborgar og vel þekktur píanóleikari í þýzka heiminum. Þeir héldu hér saman tónleika í Nýja Bíó um vorið 1925. Þórhallur sýndi þá, að hann var orðinn dugandi cellóleikari.

Nokkru síðar settist Þórhallur að í Reykjavík og hefur síðan verið virkur kraftur í tónlistarlífi bæjarins, í hljómsveit Ríkisútvarpsins frá 1931, í hljómsveitum, síðast í Sinfóníuhljómsveitinni og auk þess komið fram sem cellóleikari í sambandi við opinbera tónleika í marga áratugi.

Þórhallur hefur samið lög fyrir söng og hljómsveit, sem enn eru óprentuð. Lagið „Skúlaskeið“ (Grímur Thomsen), sem er tilþrifamikil ballata, hefur verið sungin opinberlega og vakið verðskuldaða athygli.

x x x x x

Hér að framan hefur verið talað um þau tónskáld, sem komu fram á tímabilinu 1900 – 1930. Þau eru Reykjavíkurtónskáld í þeim skilningi, að þau eru búsett í bænum. Sum vinna þó aðalstarf sitt á næsta tímabili, en þau eru komin fram í tónlistarlífi bæjarins fyrir 1930, sum að vísu að litlu leyti, og eru því talin hér með.

Hinsvegar eru þjóðkunn tónskáld ekki talin hér með, eins og Björgvin Guðmundsson á Akureyri, Friðrik Bjarnason í Hafnarfirði, Ingi T. Lárusson á Norðfirði og Jónas Tómasson á Ísafirði. Tónlistarstörf þeirri eru ekki unnin í Reykjavík, enda öll búsett annarsstaðar.

Til baka

Tónlistarsafn Íslands, Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík | Sjá á korti
Sími 525 5754 / 824 6413 | Netfang: ts@tonlistarsafn.is