Félags Íslenskra Hljóðfæraleikara -FÍH- og hljómsveit þeirra

Árið 1932 varð viss stefnumörkun í réttindum og kjörum íslenskra tónlistarmanna, kannski frekar en annarra stétta í landinu, við það að það ár stofnuðu hljóðfæraleikarar með sér hagsmunasamtök undir heitinu Félag Íslenskra Hljóðfæraleikara. Bjarni Böðvarsson og Þórhallur Árnason stóðu að fyrsta fundarboðinu. Hljóðaði það þannig:

Við undirritaðir teljum að nauðsynlegt væri, af ýmsum ástæðum, að stofnað væri til félagsskapar fyrir ísl. hljóðfæraleikara, þ.e.a.s. þá, sem hafa músík að einhverju eða öllu leyti að atvinnu. Viljum við því biðja yður, sem við vonum að hafi áhuga fyrir þessu máli, að mæta á fundi á Hotel Borg, herbergi nr. 103, sunnudaginn 14. febrúar [1932] kl. 5 síðd. til að athuga og undirbúa stofnun þessa fjelagsskapar.

Virðingarfyllst, (67)

[undirritað af Bjarna Böðvarssyni og Þórhalli Árnasyni].

67 Tónamál Nr. 15. febrúar 1982 – 50 ára afmælisrit FÍH.

Orðalagið “af ýmsum ástæðum” boðaði ekki gott í svona fundarboði. Það benti á mikil vandræði í málum félagsmanna. Stundum var gripið til þessa, og svipaðs orðalags þegar taka þurfti stórar ákvarðanir og segja frá þeim þar sem sannleikurinn var hulinn. (68)
Á fundinum voru kosnir 3 menn til að vinna að undirbúningi almenns stofnfundar (Páll Ísólfsson var þriðji maðurinn). Framlag Páls varð ekki teljandi og undirbúningsvinnan var unnin af Bjarna og Þórhalli. (69) Í lok fyrsta fundar, sem haldinn var 28. febrúar árið 1932, bar Bjarni Böðvarsson fram eftirfarandi tillögu:

Vegna þess hve útlendir hljóðfæraleikarar hafa tekið mikla vinnu frá íslenzkum, bannar félagið hér með meðlimum sínum að spila á móti útlendingum nema fyrir fullt gjald samkv. gjaldskrá félagsins. (70)

Þetta orðalag “nema fyrir fullt gjald” þýðir að íslenskir hljóðfæraleikarar skuli ekki spila fyrir lægri laun en gjaldskrá félagsins kvað á um. Vinnuveitendur vildu helst að heiðurinn að spila saman með útlendingunum skyldi vera launin. Einnig tíðkaðist það að hinar svokölluðu “hótelhjómsveitir” léku á hótelunum til kl. 11.30 og var síðan farið út í danshúsin og

68 Má þar til nefna orðalag “vegna ýmissa erfiðleika” sem oft hefur verið gripið til í tengslum við að Tónlistarfélagið lagði niður starfsemi Hljómsveitar Reykjavíkur, sem það sá um reksturinn á. Þessir “ýmsir erfileikar” átti m.a. við að hljóðfæraleikarar vildu fá greitt fyrir sína vinnu.
69 Páll varð aldrei virku þáttakandi í starfsemi FÍH.
70 Tónamál Nr. 15. febrúar 1982 – 50 ára afmælisrit FÍH.

íslensku hljóðfæraleikurunum ýtt út. Þessi tillaga átti eftir að verða baráttu- og leiðarljós félaga í F.Í.H. í mörg ár.
Hljómsveitin var stofnuð 25. janúar 1944 og hélt 5 tónleika í maí 1944 undir stjórn Róberts Abraham Ottóssonar. Uppistaða hljómsveitarinnar voru menn sem stundað höfðu hljóðfæraleik í hinum ýmsu hljómsveitum, sem fram höfðu komið í Reykjavík, og voru meðlimir í FÍH. Fljótlega gerðu menn sér ljóst að góð samvinna við Tónlistarfélagið var nauðsynleg því ýmsir bestu hljóðfæraleikararnir í bænum voru kennarar við Tónlistarskólann og því menn Tónlistarfélagsins. Einnig kom upp sú staða að tveir helstu fiðluleikararnir, þeir Þórarinn Guðmundsson og Björn Ólafsson myndu ekki leika í sömu hljómsveit þar sem báðir myndu gera tilkall til konsertmeistarastöðunnar. Enda kom í ljós að Þórarinn vildi vera með “með því skilyrði að hann yrði konsertmeistari. Þótti sýnt að vandasamt myndi að fá samvinnu milli Þórarins og Björns Ólafssonar”. (71)
Strax í byrjun var reynt að fá Pál Ísólfsson til að stjórna hljómsveitinni, en hann taldi sig ekki geta það vegna annarra anna, og “auk þess vildi hann gjöra frekari tilraunir til samkomulags milli Tónlistarfélagsins og Hljómsveitarinnar. Vildi hann koma á sameiginlegum fundi innan skamms og að láta bíða eftir því, áður en nokkuð frekar væri gjört í þessu”. (72) Að ýmsum öðrum málum þurfti að huga, eins og nótnakaupum og afla hljómsveitinni styrktarmeðlima og finna æfingahúsnæði.
Þörfin fyrir hljómsveit var óumdeilanleg og áhuginn mikill, en beðið var eftir réttu augnabliki. Það kom svo þegar Róbert Abraham boðaði fulltrúa hljómsveitarinnar á fund á heimili sínu og spurðist fyrir um hvort hljómsveitin væri fáanleg til að “aðstoða við uppfærslu á stykki eftir Brahms fyrir kór og hljómsveit”. (73)
Meðal annars kom í ljós á fundinum að Róbert treysti sér ekki til að setja verkið upp nema með liðsinni Björns Ólafssonar (fiðlu) og Heinz Edelstein (selló). Báðir voru kennarar við Tónlistarskólann og því á sama tíma “Tónlistarfélagsmenn”. Helsta ágreiningsmál hljómsveitarinnar og Tónlistarfélagsins var það að hljómsveitin vildi láta nafns síns sérstaklega getið í hvert sinn sem hún kæmi fram undir eigin nafni. Hér er enn eitt gott dæmi um hin ýmsu vandamál sem við var að etja.
Hin gamla Hljómsveit Reykjavíkur var stofnuð með undirritun Samþykkta árið 1925. Samþykktir þessar fólu í sér að hljómsveitarmeðlimir voru ráðnir með skriflegum samningi og fengu ákveðna þóknun fyrir að leika með. Í ljós kom síðar að þetta ákvæði varð einskonar fjárhagsleg “gildra”. Strax við stofnun hljómsveitarinnar hófst togstreita um völd í tónlistarlífi Reykjavíkur sem átti eftir að verða meira áberandi er á leið.

71 Fundargerð stjórnarfundar Hljómsveitar FÍH. 1. febrúr 1944.
72 Sama.
73 Sama. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvaða verk var um að ræða.

Þegar Hljómsveit Reykjavíkur var “lögð undir” Tónlistarfélagið (1932) gengu allar fyrri samþykktir úr gildi. Kom þetta mál m.a. upp í umræðuna við stofnun Hljómsveitar F.Í.H. og voru ýmsir reiðir yfir framkvæmd þess máls þar sem þeir töldu ólöglega hafa verið að málum staðið við yfirtöku hljómsveitarinnar. Sú reiði kom m.a. til af því að ýmsum sem höfðu leikið með hljómsveitinni var ekki gefinn kostur á að vera með undir Tónlistarfélaginu né heldur gerast meðlimir í félaginu. Ekki er ólíklegt að tækifærið hafi verið notað til að grisja í þeim hópi er eitthvað kunni fyrir sér á hljóðfæri en var án nægrar færni. Það var ekki lengur nóg að vera aðeins “hæfileikaríkur”.
Nokkrir meðlimir hinnar “gömlu” hljómsveitar höfðu óskað þess árið 1942, að endurreisa Hljómsveit Reykjavíkur með því nafni en Tónlistarfélagið taldi sig hins vegar eiga þetta nafn. Aftur á móti væri mönnum heimilt að stofna með sér starfsmannafélag, sem þeir og gerðu, en svo kom í ljós að það naut engra réttinda gagnvart rekstraraðilum hljómsveitarinnar. Urðu niðurstöður þær að meginþorri hljómsveitarmanna, sem hvort eð var voru meðlimir F.Í.H. ákváðu að leita á náðir félagsins um samninga og réttindi sér til handa í hljómsveitinni. F.Í.H. gekkst í það að reyna að ná samningum við Tónlistarfélagið fyrir félagsmenn sína. Það skal tekið fram að hinir gömlu meðlimir Hljómsveitar Reykjavíkur þáðu lítil eða engin laun fyrir leik sinn. Annað gilti um meðlimi Tónlistarfélagsins, sem voru kennarar við Tónlistarskólann, en þeir voru flestir í föstu starfi þar. Engir samningar tókust á þessum tíma við Tónlistarfélagið og hætti það rekstri hljómsveitarinnar. Má oft sjá í blaðaumfjöllun um þessa hljómsveit og endalok hennar að gripið er til orðalagsins “af ýmsum orsökum”. Þegar það er orðað að hætt hafi verið við starfsemi hennar. Erfitt var fyrir íslenska hljóðfæraleikara að fá greitt fyrir vinnu sína, og það sem er merkilegt í því sambandi nú þegar þetta er skrifað að íslenska Ríkisútvarpið og Ríkissjónvarpið hefur orðið sekt um að reka þessa “borga ekki fyrir tónlistarflutning” – stefnu að töluverðu marki. (74)
Þrátt fyrir að þreifingar um samninga milli Tónlistarfélagsins og F.Í.H. væru í gangi, má sjá að Páli Ísólfssyni þótti “til bóta” (75) að hljómsveitin hæfi starfsemi sína. Rætt hafði verið við Urbancic um að stjórna hljómsveitinni, en ákvæði í starfssamningi hans við Tónlistarfélagið kom í veg fyrir að hann ynni fyrir aðra, enda tók hann mjög vel í það að Róbert Abraham stjórnaði fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar. (76)
Mikilvægt var að hefjast handa við æfingar því Tónlistarfélagið var að hefja æfingar á óperettunni Í álögum og eins þurfti leikfélagið á hljóðfæraleikurum að halda í leikritinu Pétur Gautur. Benti Róbert á að ef menn byrjuðu að æfa í fyrrnefndum verkum, væri enginn tilgangur í því að fara að æfa undir tónleika. Leikhúsin höfðu gert samninga við F.Í.H. og viðurkenndu þau rétt meðlima félagsins að spila á þeirra vegum.

Einnig voru umræður um að sleppa nafni Hljómsveitar Reykjavíkur úr leikskrám, en það reyndist örðugara en ætlað var og lýsir það ástandinu
Tónlistarfélagið sá um uppsetningu á leikritinu Pétri Gaut og sýnt var að um mikla vinnu yrði að ræða fyrir hljóðfæraleikara. Jafnframt krafðist Tónlistarfélagið þess að nafn Hljómsveitar Reykjavíkur kæmi fram í leikskránni. Málið var á viðkvæmu stigi því í gangi var könnum þess efnist hvort Hljómsveit Reykjavíkur hefði nokkurn tíma verið lögð niður og hvort Tónlistarfélagið hefði framkvæmt eitthvað ólöglegt við að yfirtaka hana og leitast við að ná samningum um þessi viðkvæmu mál.

74 Má benda á nýlegan fund í félaginu um þetta mál og yfirlýsingar í dagblöðum um sama efni (apríl 1996).
75 Fundargerðarbók Hljómsveitar F.Í.H.
76 Róbert hafði það á orðið í samningum við hann að hann vildi ekki ganga fram fyrir Urbancic og því yrði að leita álits hans fyrst.

Hljómsveit F.Í.H. hóf æfingar af fullum krafti og þegar þær voru komnar í gang fóru hljóðfæraleikarar að streyma inn í hópinn til að vera með. Á tónleikum hljómsveitarinnar í mars 1944 í Tjarnarbíói, sem haldnir voru í samvinnu við Söngfélagið Hörpu, voru alls 36 hljóðfæraleikarar. (77) Erfitt er að gera sér grein fyrir hollustu blaðadóma um leik hljómsveitarinnar. Í fundargerðinni er tekið fram að leikurinn hafi fengið góða dóma almennings en slæma dóma hjá þeim Baldri Andréssyni og Emil Thoroddsen. Taka skal fram að báðir þessir menn voru “Tónlistarfélagsmenn”. Að loknum þeim 5 tónleikum sem haldnir voru lagðist starfsemi hljómsveitarinnar niður. Var það auk þess sem bent hefur verið á að framan, vegna mikilla anna hljóðfæraleikara við önnur störf, svo sem að leika á kaffihúsum sem gaf þó a.m.k. laun. Mikið var að gera í danshúsamenningunni, og eins var á þessum tíma frumflutt fyrsta óperettan, sem samin var á Íslandi, og einnig voru leikhúsmálin í miklum blóma.

77 Haldnir voru 5 tónleikar: 7., 10., 14., 18. og 24. mars.
Það leið nokkur tími eftir tónleikahaldið þar til haldinn var fundir í stjórn hljómsveitarinnar. Á aðalfundinn þann 30. júní, kom ekki nema um helmingur lögmætra félaga vegna anna við spilamennsku. Þrátt fyrir að engar ákvarðanir væru teknar í nafni aðalfundar var tækifærið notað til almennra fundarhalda og skýrði formaður, Hallgrímur Helgason, frá hversu miklir örðugleikar væri í því að fá húsnæði til æfinga og tónleikahalds í Reykjavík og minntist hann m.a. á það að Tónlistarfélagið væri að hefja umræðu á því máli. Lagði hann til á þessum fundi að sótt yrði um lóð undir byggingu tónlistarhallar sem kórarnir í Reykjavík, Tónlistarfélagið og Hljómsveit F.Í.H myndu gangast fyrir byggingu á. Þarna örlaði dálítið á fyrrnefndri spennu milli félaganna. Ljóst var að Tónlistarfélagið væri að sækja um lóð og því skyldu F.Í.H. menn ekki verða seinni til. Þrátt fyrir það að fundarmenn álitu að ekki væri ráðlegt að leggja inn umsókn um lóð áður en umræða og samningar færu fram bæði við kórana og Tónlistarfélagið, hélt Hallgrímur fast í viðhorf sitt. Endaði þetta mál með því að tillaga hans var samþykkt með orðalagsbreytingu. Ekki hefur mér tekist að svo stöddu að fylgja því máli eftir, en allir þekkja þróun þessa máls – Tónlistarhöllin er ekki risin enn.

Stjórnarfundur sem halda skyldi í byrjun nóvember 1944 var aldrei haldinn né aðalfundurinn í framhaldi af honum. Sú mynd sem hér er dregin upp er dæmigerð fyrir ástand í tónlistarmálum á þessum árum. Ekki voru haldnir tónleikar nema samkomulag yrði um það í einstaka tilfellum. Næsti fundur í hljómsveit F.Í.H. var haldinn 4. apríl 1945 og kom þá í ljós að nótur, sem pantaðar höfðu verið frá Ameríku, höfðu tapastá leið til landsins. (78) Var formanni falið að leita ásjár hjá Róbert Abraham Ottóssyni um að koma á tónleikum.
Mánudaginn 16. apríl 1945 er svo haldinn síðasti fundur í þessari stofnun. Má lesa í fundargerðinni að hollusta væri horfin í garð hljómsveitarinnar bæði vegna anna á öðrum sviðum og einnig vegna þess að menn voru orðnir þreyttir á því skipulagsleysi sem ríkt hafði svo lengi. Vil ég ljúka þessum kafla með síðustu orðum þessarar fundargerðar: – “…fleira var ekki tekið fyrir”.

78 Nóturnar glötuðust er MS. Goðafossi var sökkt vestur af Íslandi í síðustu heimsstyrjöld.

Til baka

Tónlistarsafn Íslands, Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík | Sjá á korti
Sími 525 5754 / 824 6413 | Netfang: ts@tonlistarsafn.is