Safnið er opið virka daga milli kl. 10. og 16.
Tónlistarsafn Íslands Hábraut 2, 200 Kópavogur
Sími: 570 1693 / 824 6413
Vefur: tonlistarsafn.is
Netfang: ts@tonlistarsafn.is

Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari færði Tónlistarsafni Íslands að gjöf fyrsta sellóið sem hann eignaðist en það var smíðað handa honum þegar hann var 4. ára gamall. Sellóið smíðaði danski fiðlusmiðurinn Hans Dahl að ósk förðu Erlings. Þetta hljóðfæri má nú sjá í Tónlistarsafni Íslands ásamt fleiri munum úr eigu Erlings.
Sjá nánar frétt í Morgunblaðinu.
Nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík héldu tónleika 29. október ssl. þar sem þeir léku tónlist Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Tónleikarnir voru haldnir í Þjóðmenningarhúsinu, en daginn áður léku nemendurnir nokkur verkanna á hádegistónleikum í Tónlistarsafni Íslands.
Ný heimasíða Tónlistarsafns Íslands verður opnuð 8. júní 2012. Samtímis verður opnaður nýr Ísmús gagnagrunnur sem hýsir þjóðfræðaefni Árnastofnunar og Fræðaseturs Vestur-Húnavatnssýslu, elstu upptökur á vaxhólkum, myndir af tónlistarhandritum úr íslenskum söfnum, myndir af lögum í bókinni Íslensk þjóðlög og Íslenskar kirkjur, orgel og organistar þeirra.
Hafið með okkur biðlund!